Færsluflokkur: Menntun og skóli

Fyrir okkur fávitanna : )

Fyrir okkur fávitanna sem vitum ekkert og skiljum ekkert. Fyrir ykkur sem ætlið að kjósa JÁ, Er ekki jafn fáránlegt að fara út í búð og versla í matinn, koma að kassanum og afgreiðslumaðurinn segir, þetta kostar 5000 kr. og þú segir það er of lítið ég er ekki tilbúin að borga svona lítið, ég ætla að borga þér 10.000 kr. fyrir matinn. Hver vill borga meira fyrir, þegar hann getur borgað minna ??? Í mínum huga eru það fávitarnir, og væri ekki líka allt í lagi að láta mann vita þegar verið er að setja okkur í skuldir, ekki vissi ég af þessum Icesave fyrr en allt var farið á hausinn, og ég tel mig nokkuð vel upplýsta, les blöðin og horfi alltaf á fréttir á báðum stöðvum. Finnst fólki virkilega í lagi að borga skuldir annarra ??? Ég fer á kjörstað á morgun og ætla að kjósa NEI.  Hvar er ábyrgð Breta og Hollendinga ???  Af hverju tala Steingrímur og Jóhanna kosningarnar niður ???  Hvaða skilaboð eru þau að senda okkur og heiminum með þessari framkomu ???  í mínum huga er það ekkert annað en skemmdaverk hjá þeim, ef þau fara ekki á kjörstað, þá eiga þau að fara frá og það strax. Mér finnst þau haga sér eins og fávitar.
mbl.is Ólafur Ragnar ætlar að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón

 Núna eigum við að krefjast þess að það sama verði gert fyrir Íslendinga, það verður að gera eitthvað í þessu. Ætlum við að láta þetta ganga yfir okkur ? Við höfum verið að biðja um 20 % afskriftir.  Nei, það er ekki hægt, en Svíar fá 40 %, hvað er í gangi ??????? Við eigum ekki að biðja um 20% afskriftir núna, heldur 40%, það á að ganga það sama yfir alla, og það skiptir engu máli hver var tilgangur með þessum lánum, hlutabréf eða húsbréf, Íslendingur, útlendingur, peningar eru peningar. Það er örugglega hægt að fara með þetta núna fyrir dómsstóla, þar sem það getur ekki verið löglegt að mismuna svona.
mbl.is Kaupþing býður afskriftir í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ ER ÞETTA ??? HVAÐ MEÐ ÍSLENDINGA ???

Vísir, 11. feb. 2010 14:21    Hvað er þetta ???? Hvað með Íslendinga ???? Nú verða menn að láta í sér heyra, ÆTLUM VIÐ ENDALAUST AÐ LÁTA BANKA OG RÍKISSTJÓRN TROÐA Á OKKUR, ER EKKI KOMIÐ NÓG ???

Þúsundir Svía fá tilboð um 40% afskrifir frá Kaupþingi

mynd
Um 3.200 Svíar hafa fengið tilboð frá Kaupþingi um 40% afskriftir af lánum sínum í bankanum þar í landi.

 

Kaupþing í Svíþjóð lánaði sparifjáreigendum þar í landi fyrir kaupum á skuldabréfum í Lehman Brothers. Voru lánin með veði í bréfunum. Heildarupphæðin á þessum lánum nemur um milljarði sænskra kr. eða tæplega 18 milljörðum kr. Umræddir Svíar fengu að jafnaði 350.000 sænskar kr. hver að láni frá Kaupþingi til þessara skuldabréfakaupa.

 

Kaupin á skuldabréfunum fóru fram í gegnum fjármálafyrirtækið Acta Kapitalförvalting. Í frétt um málið á vefsíðunni e24.se segir að fyrrgreindir 3.200 viðskiptavinir Acta fengu í síðasta mánuði rukkunarbréf frá norska innheimtufélaginu Lindorff um að borga lán sín.

 

Lindorff hafði tekið að sér að rukka inn þessi lán Kaupþings en deilt hefur verið um hver skuli greiða þau. Í dag fengu svo þessir viðskiptavinir Acta tilboð frá Kaupþingi um að þeir sleppa við að borga 40% af þessum lánum.

 

Þetta nýja tilboð Kaupþing felur í sér að bankinn kaupir aftur umrædd skuldabréf, sem voru grunnurinn fyrir fjárfestingum Svíana hjá Acta. Svíarnir fá 40% af nafnvirði skuldabréfanna, það er tapa 60%.

 

Á e24.se segir að þessu tilboði Kaupþings fylgi einn böggull skammrifi. Svíarnir verða að gefa frá sér allan rétt á lögsókn gegn Kaupþingi og Acta vegna þessara viðskipta.

 

Ennfremur segir þar að Kaupþing muni væntanlega tapa 120 milljónum sænskra kr. eða rúmlega 2 milljörðum kr. á þessu nýja tilboði sínu. Hinsvegar er ekki vitað hvernig Acta ætli að bæta Kaupþingi tapið.


Sandkassa leikur Steingrímur........

grinmynd_olafur_steing_johan.jpgHvaða rugl er það að Steingrímur hafi ekki talað við Ólaf Ragnar síðan hann skrifaði ekki undir, er Steingrímur að breytast í Davíð Oddsson, hvaða barnaskapur er þetta, viljum við hafa svona menn við völd sem eru móðgaðir úti horni ef þeir geta ekki verið sammála, hippppsaðu upp um þig Steingrímur og vertu eins og maður, þú verður meiri fyrir, svona sandkassaleikur er liðin tíð.
mbl.is „Ekki einhliða innanríkismál“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varstu skáti á tímabilinu 1962 til 1964 ?????

Ef svo er þætti mér vænt um að þú hefðir samband við mig. Sérstaklega ef þú ert ein að þeim sem fóru í heimsóknir til barna (um jól) á ríkisrekin  barnaheimili (Silungapoll) til að færa þeim jólagjafir. Ég er eitt af þessum börnum og er að rannsaka gjafaferðir skáta jólin 1963 sem voru örugglega farnar í góðri trú um að þeir væru að gera góðverk, sem var síðan ekki raunin. Þegar þeir voru farnir af svæðinu, þá kom annað í ljós, ef einhver man eftir þessum ferðum væri mjög gott að heyra þeirra sögu, sem var örugglega farin í góðri trú og þeir ekki vitað betur og vita sennilega ekki annað í dag. Ef þú veist eitthvað um þessar ferðir getur þú svarað mér hér á blogginu eða sent mér línu á sivva@visir.is og skilið eftir símanúmer og ég hef samband við þig. Með fyrirfram þökk.

Það á að sekta fólk sem ekki hugsar um börnin sín

Það ætti að sekta fólk sem hugsar ekki um börnin sín, þegar börn fá skemmdar tennur þá er það bara út af vanrækslu hjá foreldri, ef börn eru burstuð 2 til 3 á dag og aukalega þegar þau fá eitthvað sæt eða súrt þá eru ekki skemmdar tennur hjá þeim, fólk talar um að lyf valdi skemmdum það er bull, vanræksla veldur skemmdum sama hvað hver segir, til að halda tönnum heilum verður að bursta mörgum sinnum á dag nota tannþráð daglega og munskol daglega. Ég á 3 börn og ég gerði þetta með þau öll, var að vísu mikil vinna en það er mikil vinna að eiga börn, ekkert að mínum börnum er með skemmdir þau eru núna 26, 23, og 18 ára og eru með perlu hvítar tennur, þetta er hægt en það er vinna sem borgar sig kostnaður við tannlæknaferðir á 6 til 8 mánaða fresti er ekki mikil.(flúor,skoðun og myndataka) Og hvað sem hver segir þá skemmast ekki tennur sem er hugsað um. Það er ekki sama að bursta og bursta.
mbl.is Sykrað gos skattlagt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari

Rétt fyrir hvítasunnu hringir roskinn maður á Raufarhöfn í son sinn í
Reykjavík og segir "mér finnst leiðinlegt að eyðileggja svona fyrir þér
daginn, en ég verð að segja þér að við mamma þín erum að skilja.  Ég er búinn
að fá nóg eftir fjörtíu og fimm ömurleg ár."

"Pabbi hvað er eiginlega hlaupið í þig?" hrópar sonurinn í símann.

"Við þolum ekki lengur að sjá hvort annað" segir gamli maðurinn.
 "Við erum komin með ógeð hvort á öðru.  Mér verður illt þegar ég tala um þetta
svo ég bið þig að hringja í hana systur þína í Hafnarfirði og segja henni
frá þessu."

Sonurinn alveg í rusli, hringir í systur sína sem tryllist
"Þau fara ekkert
að skilja á meðan ég fæ einhverju ráðið" öskrar hún í símann "láttu mig sjá  um þetta."

Hún hringir samstundis norður á Raufarhöfn og hrópar á gamla manninn föður  sinn.
"Láttu þér ekki detta það í hug að þið farið að skilja.  Og gerðu enga
vitleysu fyrr en ég er komin til ykkar.  Ég hringi í hann bróður minn og svo
komum við bæði til ykkar annað kvöld.

Og enga vitleysu - Heyrir þú það!"
Og með það leggur hún tólið á.

Gamli maðurinn leggur tólið á snýr sér að konu sinni og segir

"Jæja þau verða þá hjá okkur núna á hvítasunnunni.  Hvað getum við eiginlega
sagt þeim svo þau komi til okkar á jólunum?"


Góður
Tounge



Viðbjóður........

það er eitthvað mikið að hjá þessum stelpum, það skiptir ekki máli hvað var deilt um svona gerir maður einfaldlega ekki, þetta er viðbjóður, vonandi fá þær einhverja refsingu, svo skilaboðin út í þjóðfélagið séu ekki þau, að þetta sé í lagi, vonandi verður í lagi með fornalambið.
mbl.is Stúlka varð fyrir líkamsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áróður..........

Eru VG bara í ríkisstjórn ??? það gætu einhverjir vitleysingar eins og ég misskilið þessa frétt, enda sett upp í áróðursformi, eru ekki bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra úr Samfylkingunni. Hvaða bull er þetta ???? Á fréttin ekki að vera VG og Samfylkingin komu í veg fyrir að EFTA-ríkin samþykktu þjónustutilskipun ESB ?????
mbl.is VG stoppaði ESB-lögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari.....

Vissir þú að:

 

-          Það tekur matinn 7 sekúndur að fara frá munni og ofan í maga.

-          Hár af höfði manns getur haldið þrem kílóum.

-          Lengdin á lim mannsins er jöfn lengd þumalsins, margfaldaðri með þremur.

-          Lærbeinið er hart sem steinsteipa.

-          Hjörtu kvenna slá hraðar en hjörtu karla.

-          Á hverjum fæti höfum við þúsundir baktería.

-          Konur blikka augunum tvöfalt oftar en karlar.

-          Við notum 300 vöðva bara til að halda jafnvægi á meðan við stöndum.

-          Konur eru nú búnar að lesa allan þennan póst.

-          Karlar eru enn að skoða á sér þumalinn!

            ;-) Tounge


 

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband