Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Sá réttur okkar til að mótmæla er í hættu.....

 Þarna var ekki verið að mótmæla, hér er aðeins um skemmdarverk að ræða. Ég á rétt á að mótmæla og nýti mér þann rétt, með því að mæta á Austurvöll og mótmæla á friðsaman hátt.  Þessar aðgerðir gera ekkert annað en að skemma fyrir okkur hinum, og það endar með að ekki verður hlustað á okkur. Ekki það að ráðamenn séu að hlusta núna, ennnn  það kemur að því að þeir verða að hlusta,  að skemma eigur fólks lofar ekki góðu.  það gerir ekkert annað en að koma fólki upp á móti þessum mótmælum,  þá hættir fólk að mæta.  Hvar erum við þá ???  jú... þá geta ráðamenn setið áfram og gert það sem þeim sýnist. Réttur minn til að mótmæla er í hættu, ég bið fólk sem var þarna í dag að endurskoða hvað það er að gera. Þessar aðgerðir gera ekkert og skila engu.
mbl.is Fólk slasað eftir mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður....

 Það er bara eitt orð yfir þessa frétt  GÓÐUR. Wink
mbl.is Tætir sundur skuldir heimila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona á að gera þetta...........

 Bjóða upp á kaffi, kakó, og smákökur, bara svona huggggulegt, (hefði ekkert haft á móti því að fara í kaffi með Ólafi og Dorrit) svona á að gera þetta, þeir í Alþingishúsinu og Seðlabankanum  mætu taka þetta sér til fyrirmyndar, þetta er jólaandinn, núna held ég að það sé mál að taka frí frá mótmælum, safna kröftum, og koma sterkur til baka eftir áramót, því þetta er ekki búið, og þá verða allir að vera með, gera þetta af krafti svo þessir ráðamenn vakni til lífsins.
mbl.is Ólafur og Dorrit buðu mótmælendum upp á kaffi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru það sem lesa þetta blað ???

 Og hverjir eru það sem hafa trúað því sem stendur þar ???  Ennnn núna ???

 Fannst þessi mynd viðeigandi, hver er að sleikja ra.... á hverjum ??? 3.2434330479.jpgbað


mbl.is Reynir biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á okkar kosnað.......

Hann er að fá þessa aukningu bara vegna hryðjuverka-árásarinnar á okkur, þetta kunnu Bretar að meta svo hann ætti að þakka okkur fyrir þessa aukningu á fylgi, þetta var á okkar kostnað.Sick d_my_pictures_cartoon_412554a_701210
mbl.is Brown sækir í sig veðrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á götuna.....

03-12-08.jpg geir Það verður að setja þak á verðtryggingu t.d. 2 til 3% hámark, áður en ég og hálf þjóðin verðum eignarlaus og lendum á götunni, þetta getur ekki gengið svona. Ég kæri mig ekkert um að fara í leiguhúsnæði eins og Jóhanna talar um,  þessi verðtrygging er bara þjófnaður, ég átti 13. milljónir í íbúðinni minni fyrir 3.-4. árum, (um 50%) ég borga og borga, og er ekki í vanskilum, í dag á ég um  5.-6. milljónir. Ég er orðin 50. ára og þetta er ævisparnaðurinn minn.  það er verið að stela honum af mér. það á að afnema verðtrygginguna strax  og hafa það afturvirt. Ætli ég geti farið í mál við ríkið fyrir þjófnað ???  Ég hef ekki tekið þátt í veraldarkapphlaupinu sem er búin að vera eins og vírus yfir landinu í mörg ár, ég hef þurft að velta fyrir mér hverri krónu, síðustu 15. árin. Ég sá viðtal við Geir  inni á Sky fyrir nokkrum dögum og þar talar hann um að við værum svo  góðu vön,  ég hef ekki séð þetta góðæri.  Hann hefur verið að tala um sjálfan sig???  En hver hlustar á mig ??? einhver kerlingardrusla að kvarta. Varð að setja þessa mynd Halldórs inn hún passar vel við, ég í yfirliði Crying
mbl.is Hiti í fólki í Háskólabíói
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru þau ekki bara að kalla og öskra ???

Sem sagt að mótmæla, þannig skildi ég þessa frétt. Það er svo ekki fyrr en að öryggisverðir og lögregla kemur á staðinn að allt fer í háa loft. Þá er spurningin hver var með ofbeldi ??? Vantar ekki bara Sálfræðing við hurðina á Alþingi ??? Ég hefði frekar gert hlé á fundi og boðið öllum hópnum í heit kakó og leift  þeim að tala við einhvern eða einhverja alþingismenn, ég hef ekki trú á að þetta séu slæmir krakkar,  bara munurinn á þeim og okkur er að þau þora, en ekki við. 

Baráttu-g myndir blogg ymislegt davi og geirkveðjur til ykkar frá ömmu.


mbl.is Ólæti á þingpöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankastjóri sem hefur ekki yfirsýn...

 Hefur hún virkilega ekki betra yfirsýn yfir skuldirnar sínar, og hún er Bankastjóri. Hún fær lán í feb 2007 og uppgötvar ekki fyrr en í feb 2008  að hún fékk ekki lánið. Frown Hvernig lán var þetta??? Ekkert borgað af því fyrsta árið !!!  Ég er ekki Bankastjóri ennnn er viss um að ég hefði tekið eftir þessu. Þetta er auðvita ekki í lagi !!!??? Shocking
mbl.is FME aðhefst ekki vegna viðskipta Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband