Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

ÚÚÚ..... fáum við þá hjálp líka

  við að borga af húsnæðislánunum, eða á bara að bíða eftir að lánin hækki og hækki þar til ekkert er eftir  af eignarhluta okkar í íbúðunum, og hvað þá ?  Úúú... ég veit, allir út að tjalda í Laugardalnum, á meðan Glitnir og aðrir bankar yfirtaka íbúðirnar. Partý ársins í Laugardalnum í vor, mæting ætti að geta orðið nokkuð góð svona 20 til 50 þúsund manns.....   Nei ég bara smá missti mig........Pinch   

 


Stóra leyndarmálið

    Hvaða sandkassaleik eru ráðamenn í núna?  Af hverju megum við ekki vera með? Er okkur ekki treystandi fyrir þessum upplýsingum? Þær eru kannski svona tæknilegar að við skiljum ekki? Hver var það sem réði þessa menn í vinnu? Hvernig fáum við upplýsingar? Það er sennilega eina spurningin sem ég get svarað........ Svar: FJÖLMIÐLAR.  Nei nú ætla ég að hætta því vitið er farið út í veður og vind. Pinch Shocking
mbl.is Ráðamenn funduðu fram á nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einelti er sálar skemmandi

 Ég hef orðið fyrir mjög slæmu einelti bæði líkamlegu og andlegu, þeir sem leggja í einelti ættu að hafa það í huga að  venjulega eru þetta einstaklingar sem eitthvað mikið er að hjá (sem leggja aðra í einelti) Þegar ég var lögð í einelti var ég 13 til 16 ára, þetta var skelfilegur tími fyrir mig, og afleiðingarnar voru þær að ég hætti að treysta fólki, og það eimar að þessu enn í dag. Smá dæmi hvað var gert við mig, ég var með mikið ljóst hár, nokkrar stelpur tóku sig sama og fóru með mig inn á klóset og tóku hausinn á mér og héldu ofan í klósetinu svo hárið og andlit fóru ofan í vatnið síðan var sturtað niður aftur og  aftur, þegar sturtað var niður fann ég hvernig hárið á mér sogaðist inn í rörið og hvernig vatn fór inn í nefið á mér aftur og aftur,þegar ég  barðist  við  að ná  andanum. þetta var bara SMÁ dæmi um það sem ég fór í gegnum. Þegar ég mæti þessum konum í dag þá snúa þær við eða horfa niður, og forða sér. Það sem mér finnst vera alfarlegra, er að sonur minn var lagður í einelti í skóla, þar sem ég hafði verið lögð í einelti, sá ég strax hvað var að gerast, ég barðist við skólakerfið í ein 4.ár og ekkert gekk, ég talaði margsinnis við kennara, skólastjóra, foreldra, sálfræðinga,skólaskrifstofur, allir lofuðu að koma þessu í lag enn ekkert gerðist, þegar sonur minn var síðan fyrir alfarlegri líkamsárás inni á skólalóð, þar sem var sparkað í höfuðið á honum aftur og aftur, var mér allri lokið, ég tók hann úr skólanum, ég kærði atburðinn, lögreglan fór heim til drengsins sem gerði þetta og talaði við foreldra hans,þeim var gert grein fyrir hversu alfarlegt þetta væri, þau spurðu þá hver þetta væri, þeim var sagt það, þá sögðu þau,,,,, já hann er svo skelfilega leiðinlegur og svo er mamma hans eitthvað biluð ,,,, svo  þetta  var  nú  í  lagi  að  berja  strákinn  aðeins....  Lögreglan  kom  inn  á  bráðamóttöku  eftir  þetta  samtal,  og sögðu  mér  frá  þessu, þeim var greinilega brugðið. Afleiðingarnar af þessu einelti  hjá honum eins og hjá mér er að við eigum alltaf von á því versta frá fólki. 'Eg setti son minn í mjög góðan einkaskóla, þar sem hann blómstraði, núna er hann í menntaskóla og gengur vel. 
mbl.is Ódæðismaðurinn hringdi í vin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skartgripir

Vatnaperlur/girni   Mikið ætlar þetta að vera erfitt hjá mér, er að reyna að setja myndir inn í albúmið mitt, ennnn  ekkert gengur, Blush kannski mér takist það hér Errm hef verið að hanna skartgripi síðan 1996, núna er ég að gera skartgripi úr vatnaperlum, hrauni, handgerðum glerperlum, kóral, girni, raf, og silfri.  Geri líka skartgripi eftir pöntun. Mjög gott verð, þar sem ég er ekki með verslun. Hægt er að hafa samband við mig í gegnum tölvupóst. Ég kem líka í heimahús, t.d. saumaklúbba.    ps. myndirnar  koma  ekki  vel  út . Shocking RIMG0026RIMG0112

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband