Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Viðbjóður........

það er eitthvað mikið að hjá þessum stelpum, það skiptir ekki máli hvað var deilt um svona gerir maður einfaldlega ekki, þetta er viðbjóður, vonandi fá þær einhverja refsingu, svo skilaboðin út í þjóðfélagið séu ekki þau, að þetta sé í lagi, vonandi verður í lagi með fornalambið.
mbl.is Stúlka varð fyrir líkamsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taugaveiklun.......

Ég skil ekki þessa taugaveiklun yfir þessari ESB-aðild, flokkarnir hafa bara ekkert með þetta að gera, það erum við kjósendur sem kjósum um þetta, þegar að því kemur, sem allir vita sem hafa eitthvað lesið sér til um þetta þá er það ekkert á næstunni, hvort sem okkur líkar betur eða ver.
mbl.is Áherslan á ESB lýsir taugaveiklun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áróður..........

Eru VG bara í ríkisstjórn ??? það gætu einhverjir vitleysingar eins og ég misskilið þessa frétt, enda sett upp í áróðursformi, eru ekki bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra úr Samfylkingunni. Hvaða bull er þetta ???? Á fréttin ekki að vera VG og Samfylkingin komu í veg fyrir að EFTA-ríkin samþykktu þjónustutilskipun ESB ?????
mbl.is VG stoppaði ESB-lögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðsluskattaáróður.......

 

 

  

 

Skattahræðsluáróður Sjálfstæðismanna er bara hlægilegur, skoðum þetta.farið inn á síðuna hjá henni Láru Hönnu á blog.is mbl.is þar er hún með gamla (mars 2008) fréttatíma um hvað  

 

Sjálfstæðismenn eru búnir að auka við okkur skatta. OECD skoðaði skatta hér á landi og niðurstaða þeirra er svona orðrétt= Skattbyrði einstaklinga og fjölskyldna hafa aukist verulega á Íslandi 1995-2005, mun meira en í öðrum OECD-ríkjum.

Það verður bara að sýna þessa fréttatíma aftur í sjónvarpi fyrir kosningar. Getur ekki einhver fengið stöð 2.( Ísland í dag) til að sýna þetta aftur, svo þetta aumingja fólk sem heldur að Sjálfstæðismenn hækki ekki skatta geti séð þetta ??? Það er bara hræðilegt að hugsa til þess að það er hellingur að fólki þarna úti sem á ekki í sig og á, og það ætlar að kjósa Sjálfstæðisflokkinn því það sér ekki í gegnum þá.

Sjálfstæðismenn hafa ekki hingað til haft áhuga á fátækum, þeir hugsa bara um ras..... á sjálfum sér og auðvita þá ríku. Þess vegna er það bara sorglegt að fátækir skuli leggja sig svo lágt að lafa í afturendanum á þeim og hirða upp brauðmolana eftir þá. þeir sem ég þekki sem ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eru annað hvort ríkir eða fátækt ylla upplýst fólk, (horfir ekki á fréttir eða les blöðin) og er bara að kjósa þá af gömlum vana. Þessi skatta-áróður Sjálfstæðismanna er hræðilegur og skelfilegt að fólk trúi þessu.


mbl.is Fleiri munu skila auðu og strika yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari.....

Vissir þú að:

 

-          Það tekur matinn 7 sekúndur að fara frá munni og ofan í maga.

-          Hár af höfði manns getur haldið þrem kílóum.

-          Lengdin á lim mannsins er jöfn lengd þumalsins, margfaldaðri með þremur.

-          Lærbeinið er hart sem steinsteipa.

-          Hjörtu kvenna slá hraðar en hjörtu karla.

-          Á hverjum fæti höfum við þúsundir baktería.

-          Konur blikka augunum tvöfalt oftar en karlar.

-          Við notum 300 vöðva bara til að halda jafnvægi á meðan við stöndum.

-          Konur eru nú búnar að lesa allan þennan póst.

-          Karlar eru enn að skoða á sér þumalinn!

            ;-) Tounge


 

Svona frétt hef ég ekki séð á mbl.

Fyrst hélt ég að þeir á mbl hefðu fengið höfuðhögg, en svo sá ég bloggið með fréttinni. Þetta er sem sagt markaðssetning í boði Sjálfstæðisflokksins. Þeir hafa svo lítið af peningum til að spila úr núna fyrir kosningar, þetta kallar maður að bjarga sér.
mbl.is Viljum við það sem var, og hrundi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi frammíköll (öskur) eru óþolandi.......

Ætli þessir menn viti ekki af myndavélunum í salnum ??? Og að við kjósendur erum að hlusta, (sumir virðast vera búnir að missa áhugann, stjörnulesendur) Bara svo þið vitið það þá eru þessi frammíköll ykkar til skammar, þið eruð eins og smábörn sem kunna ekki mannasiði, það ætti að taka ykkur öll með tölu og setja ykkur í kalda sturtu, og athuga hvort þið vaknið upp og farið að haga ykkur eins og fólk.

Hættið svo í þessum loforðapakka ykkar, það er bara gubbulegt að hlusta á ykkur, þetta er ekkert annað en innantóm loforð.

Halló halló.... það er fólk þarna úti sem er að missa heimili sín og á ekki fyrir mat, og hvað eruð þið að gera ???  Standið upp í ræðupúlti svo klukkutímunum saman, og bullið eitthvað um eitthvað sem skiptir ekki máli, þessi vitleysa er ekki að hjálpa ykkur. Komið ykkur að verki og vinnið saman það er það sem þjóðin á skilið eftir þessar hörmungar sem þið eruð búin að koma okkur í.

Kveðja Kjósandi.


mbl.is Þingmenn syngja og dansa darraðardans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband