JÁ.... STEINGRÍMUR............

Já Steingrímur, fólk er að mótmæla aðgerðaleysi þessara ríkisstjórnar, það verður að taka 20 til 30 % af höfuðstól lána, þá fyrst getur fólk í þessu landi lifað..... rétt naumlega..... það er búið að afskrifa skuldir gömlu bankanna.... samt rukka þeir fólk upp í topp..... og bankarnir verða feitari og feitari..... og fólk fátækari og fátækari........ hvaða réttlæti er í þessu...... ríkistjórn verður látin fara af fólkinu ef ekki verður tekið af höfuðstól....... annars á allt þetta gamla lið inni á þingi að fara...... það er búin að reikna það út að það er ódýrara að fella niður þessi 20-30 % af höfuðstól lána....... með því að gera ekkert kostar ykkur miklu miklu meira, bæði ríkisstjórn og banka....... það þarf ekki hagfræðing til að sjá þetta..... hagkerfið færi á stað um leið og þig gerið þetta........og þið eigið að láta Alþjóða-gjaldeyrissjóðinn fara norður og niður, þar eru eldgamlar hagfræði-kenningar á ferð, sem gera ekkert annað en að koma okkur í dauða-dæmda stöðu.....

Þegar fólk fær (fékk)  lán hjá banka fer (fór)  það í greiðslumat, til að athuga hvort það gæti borgað til baka........ það var ekkert talað um að þessi lán ættu eftir að hækka um helming, og í greiðslumati var  ekkert reiknað út hvort fólkið gæti borgað ef þessi lán hækkuðu um helming..... Af hverju var það ekki gert ????Venjulegt fólk sem gat borgað af lánum, átti fyrir mat, gat farið í frí, þetta fólk er núna á mörkum fátæktar, ef það borgar af lánum er ekkert eftir fyrir, fatnaði, hreinlætisvörum, lyfjum, lækniskostnaði, klippingu, tómstundum, bensíni, fríi, gjöfum o.s.f

Og þetta fólk sem tók lán fyrir húsnæði og getur ekki borgað núna er kallað öllum illum nöfnum, hafi ekki hugsað, lifað um efni fram og geti sjálfum sér kennt um, þetta er ekki rétt (getur verið að það sé í einhverjum tilfella) en flestir eru í þessari stöðu af því að bankarnir komu okkur þangað með hjálp ríkisstjórnar og útrásarvíkinga. Og sömu menn sitja áfram á þingi á sínum feita rassi, síðan eru útrásarvíkingar verðlaunaðir fyrir að setja okkur á hausinn og fá niðurfellingu...... HVAÐ MEÐ OKKUR ???????

Ég veit um mörg dæmi þar sem allur peningur er búin fyrir tuttugasta hvers mánaðar og eins veit ég um fólk sem fer ekki í afmæli, brúðkaup vegna þess að það á ekki fyrir gjöfum. Ef ég veit um mörg dæmi, hvað vita þá margir aðrir um sömu dæmi ???

Ég held að ALLIR sem eru að stjórna þessu landi, búi ekki í sama landi og við... þetta venjulega fólk.....


mbl.is Óánægja vegna skuldavanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband