Þessi frammíköll (öskur) eru óþolandi.......

Ætli þessir menn viti ekki af myndavélunum í salnum ??? Og að við kjósendur erum að hlusta, (sumir virðast vera búnir að missa áhugann, stjörnulesendur) Bara svo þið vitið það þá eru þessi frammíköll ykkar til skammar, þið eruð eins og smábörn sem kunna ekki mannasiði, það ætti að taka ykkur öll með tölu og setja ykkur í kalda sturtu, og athuga hvort þið vaknið upp og farið að haga ykkur eins og fólk.

Hættið svo í þessum loforðapakka ykkar, það er bara gubbulegt að hlusta á ykkur, þetta er ekkert annað en innantóm loforð.

Halló halló.... það er fólk þarna úti sem er að missa heimili sín og á ekki fyrir mat, og hvað eruð þið að gera ???  Standið upp í ræðupúlti svo klukkutímunum saman, og bullið eitthvað um eitthvað sem skiptir ekki máli, þessi vitleysa er ekki að hjálpa ykkur. Komið ykkur að verki og vinnið saman það er það sem þjóðin á skilið eftir þessar hörmungar sem þið eruð búin að koma okkur í.

Kveðja Kjósandi.


mbl.is Þingmenn syngja og dansa darraðardans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Heyr, heyr

Rakel Sigurgeirsdóttir, 7.4.2009 kl. 06:02

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Guð já, það liggur við að Árni eyjapeyji verði skemmtilegur!

Rut Sumarliðadóttir, 7.4.2009 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband