Örlög, ætli það geti verið betra að vera fátækur ???

 Ég var að fá þennan í pósti

 

 Vísur um kreppuna og lífið
Til þeirra sem ekki hafa lesið þetta fyrr en núna !
 
> Nágranninn.
>
> 2007
>
> Ég á minnsta húsið í götunni,
> húsið sem stendur hjá Lödunni.
> Þegar granninn rennir í pottinn hjá sér-
> kólna allir ofnarnir hjá mér.
>
> Eftir að granninn gerði upp garðinn hjá sér
> skín ekki sólin lengur í garðinn hjá mér.
> Granninn fær ráðherrana í grillið til sín
> og bræluna leggur svo yfir til mín.
>
> Granninn á jeppa af flottustu sort,
> en ég á bara ljóta Lödu Sport.
> Ég fer í vinnuna með rútunni,
> en hann með einkaþyrlunni.
>
> 2008
>
> Konan hans eldist ekki hætings hót,
> en mín er alltaf bæði feit og ljót.
> Granninn er stæltur og með hárið ljóst,
> En ég er bæði með ístru og lafandi brjóst.
>
> Þegar granninn er með veislu hjá sér,
> býður hann öllum, öllum - nema mér.
> Elton John skemmti lýðnum í afmælinu,
> en ég hafði bara efni á Breiðbandinu.
>
> Óþolandi er oft, vel stæði granninn minn,
> Það trúa því fáir, að hann sé sonur minn.
>
> 2009
>
> Nú er hann kominn á heimilið mitt
> og fluttur í gamla herbergið sitt.
> Í kreppunni hann missti allt sitt fé.
> Og nú á hann minni pening en ég.
>
> Það kviknaði í báðum jeppunum,
> og konan er farin frá honum.
> Nú hangir hann heima rosa down,
> og bölvar og ragnar Gordon Brown.
 
 
 
 

  


 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Rut Sumarliðadóttir, 12.6.2009 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband