Færsluflokkur: Bloggar

Stuðingsmönnum annara frambjóðenda að þakka......

Það sem ég held að sé að gerast er þetta : Stuðningsmenn annarra frambjóðenda tala ekki um hvað frambjóðendur séu frábærir og halda sig við það .... heldur andskotast stöðugt í fortíð og tala stöðugt um hvað Ólafur sé ömurlegur.... og það sem er kannski verst.... tala stöðugt um alla fávitana sem ætla að kjósa hann.... ég held að fólk þurfi að baka aðeins og hugsa um hvað það er að skrifa og hvaða áhrif það hefur.... ég segi fyrir mig því meira sem er andskotast í Ólafi og ég kölluð siðblind og fáviti að kjósa hann .... því ákveðnari er ég í að kjósa hann..... hann er sá eini sem getur staðið upp í þessari ríkisstjórn.... fólk ætti kannski að kenna ríkisstjórn um að hann fær svona mikið fylgi.... ef önnur stjórn væri við völd þá er ég ekkert svo viss um að Ólafur fengi svona mikið fylgi  eða að hann væri í framboði yfirleit......... ; /

mbl.is Afgerandi forysta Ólafs Ragnars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinir...

Svona leið mér í kvöld þegar ég hlustaði á þingmenn tala ..... Shocking

Vinir eru eins og jólasería ! Sumir eru svolítið bilaðir, aðrir eru bara alls ekki að virka !!... sumir gefa manni stuð, einn og einn blikkar og svo eru þeir sem lýsa upp daginn þinn :-) ♥

 


Ræðumenn á þingi....

Núna rétt áðan var að ljúka stefnuræðu forsætisráðherra.... ég ætla að reyna að segja ykkur hvernig ég upplifði þessar ræður.

Jóhanna  bullaði eitthvað um hvað hún væri búin að gera mikið fyrir þessa þjóð og hvað hún væri æðisleg.

 Steingrímur  var bara reiður og sár.

Katrín talaði um prósentur og virkjanir.

Guðmundur barði bara trumbur.

Birgitta talaði um og heimilin og  bankamafíuskart_motmaeli_1_okt2011_188.jpgna.

Sigmundur talaði um......... ??? ég náði því ekki....ég var svo upptekin að horfa á hann,  hvað hann var búin að breytast í útliti og tali.

Ólöf Nordal talaði um að ekkert væri að gerast og litla samstöðu..... við gerum ekki .... við gerum ekki.... við gerum ekki.....

Svandís Svavars las fyrir okkur sögu.... hefði getað verið litla gula hænan... ég tók ekki eftir því... eins upplýsti hún okkur um að hún hefði verið mjög sár yfir ræðu forsetans....

Vigdís talaði um ljósið í myrkrinu og að Jóhanna og Steingrímur væru farin úr salnum til að kasta grjóti í glerhúsi.....

Þór S. talaði um mótmæli og erfiðleika okkar á að skilja af hverju við værum að mótmæla... hann hjálpaði okkur við að túlka þetta... eins talaði hann um spillingu, bankamafíu og einhverja útvalda sem eru á spena hjá bönkunum ...Eftirlegu kindur sem verða að fara af þingi....

Magnús Orri samfærði mig um að allt væri í lagi hér á landi..... eða þannig.... ??? Eins kom orðið jafnaðarmenn fyrir í öðru hvoru orði....

Birgir Ármann talaði um pólitíska krýsu... dulbúnar gjaldhækkanir og að fjármálaráðherra sjái í land. Getum ekki talað okkur út úr vandanum. Og að síðustu... töfralaustnir sem koma upp úr hatti.

Þráinn B. talaði um að lífið snúist um peninga og sumarið 1921. Lífslíkur upp á 28. ár fyrir karla og 36. ár fyrir konur. Hungur þekkjum við  BARA úr sjónvarpi. það vanti bros á fólkið. Við höfum séð það svartara í þessu landi. Og að lokum var það gerviheimur....

Ásmundur talaði um að það verði að upplýsa forsætisráðherra. Verðtryggingu. Aðgerðir innihalds litlar... aðeins gull umbúðir.....

Margrét talaði um væntumþykkju og að Róbert væri ekki með íslenskt verðtryggt húsnæðislán, svo hann vissi ekkert hvað hann var að tala um.  Bankar hafa ekki samviskubit eða siðferði. Bankarnir rændir innan frá og fólkið í landinu líka. Eitthvað var hvorki fugl eða fiskur. Útrásar dólgar.....

Og aumingja ég er engu nær....... velti fyrir mér hvað hafi gerst.... er eitt STÓRT spurningarmerki og er alveg LOST......


ÞAÐ ER Í LAGI AÐ FREMJA MORÐ EFTIR GÓÐAN UNDIRBÚNING................

Hvernig er hægt að skipuleggja morð í marga mánuði. Vera dæmdur ósakhæfur. Vera vistaður á réttageðdeild og vera farin í klippingu 3. dögum síðar. Eftir að geðlæknar hafa sagt að viðkomandi sé stórhættulegur ?????? MÉR ER MISBOÐIÐ, HVAÐA SKILABOÐ ER VERIÐ AÐ GEFA ÞJÓÐINNI ????? ÞAÐ ER Í LAGI AÐ FREMJA MORÐ EFTIR GÓÐAN UNDIRBÚNING..........................

ÞETTA ER GRÆÐGI OG ÞJÓFNAÐUR, STOPIÐ ÞETTA FRUMVARP.

Það er ekki verið að hugsa um fólkið sem tók þessi lán..... það er eingöngu verið að hugsa um lánastofnanir og verja þá með þessu frumvarpi...... út með Frumvarpið....... endur-uppreiknun á þessum lánum hækka lánin....... dóttir mín var að fá endur-uppreiknun......það skal tekið fram að hún var í skilum.... hún var að borga 24.000 kr. á mánuði ....... eftir endur-uppreiknun þarf hún að borga 33.000 kr. á mánuði....... hún tók lánið hjá Lýsingu...... það er ekki verið að hjálpa fólki........ þetta er þjófnaður og græðgi....... út með þetta frumvarp núna........þessi dómur hæstaréttar er bara rugl...... ég kaus vinstri græna í síðustu kosningum, því þeir lofuðu að hjálpa fólki....... núna finnst mér þeir og ríkistjórn hreinlega hættulegir..... þau eru að setja fólk og landið á hausinn með þessum aðgerðum eða réttara sagt aðgerðaleysi....... ríkistjórn komið ykkur í burtu.... þið vitið ekkert hvað þið eruð að gera..............
mbl.is Gengislánafrumvarp lagt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki niðurfærsla eða afskrifun......

Hvaða partur er það sem menn skilja ekki ????  þetta er ekki niðurfærsla, afskriftir, ölmusa, góðgerðasemi eða eitthvað gefins......... Þetta er leiðrétting lána, afleiðingar vegna græðgi banka og ör fárra spilltra manna, við fólkið í landinu eigum ekki að borga það, komið því svo inn í hausinn á ykkur, ÞETTA HEITIR LEIÐRÉTTING LÁNA, EKKERT ANNAÐ...........

annars vitna ég í grein sem ég skrifaði síðast hér inni......


mbl.is Almenn niðurfærsla skulda ólíkleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig getur það kostað 220 milljarða ????

Hvernig er  hægt að fá þessa tölu út, hver leggur þessar 220 milljarða fram ??? það er búið að afskrifa þessar upphæðir, það var gert í gömlu bönkunum......... nýju bankarnir sitja ekki uppi með eitt eða neitt nema þá ef fólk hættir að borga, og það er það sem gerist ef ekki verður farið aftur fyrir jan 2009 með skuldir fólks, það er ekki verið að biðja um ölmusu, þetta er bara græðgi í bönkunum............ hvað ef bankarnir hefðu ekki fallið, og skuldir okkar ekki hækkað, hefðu þeir þá líka tapað þessum 220 milljörðum ????  þetta er ekkert annað en græðgi, það var aldrei talað um að skuldir heimila færu upp úr öllu valdi þegar lánin voru tekin af fólki, þá hefði fólk ekki tekið lán........ hverjir hefðu þá tapað ??? Hvernig er hægt að tapa einhverju sem er (var) ekki til, þetta er jafn fáránlegt og þegar verslanir auglýsa að þú sparir 5000 kr. af því að þeir veita afslátt, þú ert ekkert að spara eitt eða neitt ef þú ert að kaupa eitthvað ...... hvernig getur það verið sparnaður, peningar sem eru (voru) ekki til, geta ekki verið skuld eða hagnaður, það er ekki verið að biðja um að lán verði feld niður, aðeins að staðið verði við það sem samið var um þegar lán var tekið, það hafa bankar ekki gert, að taka 20 % af lánum kostar þá ekkert, að gera ekkert er bara blóðbað fyrir þetta land, bankar eru búnir að taka þessar ólöglegu hækkanir inn í rekstur banka, sem er ekkert annað en græðgi og siðlaust........

Ögmundur þú verður að koma þessari þjóð til bjargar, áður en það verður um seinan, börnin mín hafa ekki talað um að fara úr landi fram að þessu.... en núna eru þau farin að tala um það.... þau eru í vinnu og eru með Háskólapróf........ og ef þau fara þá taka þau ekki skuldir með sér ..... þetta er verulegt umhugsunarefni fyrir ríkisstjórn............


mbl.is Vill almenna lækkun skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbjóður............

 Ég skrifaði  um þetta í gær...... og á ekkert að gera í þessu ????...... græðgi...... siðleysi...... viðbjóður... þið ættuð að skammast ykkar siðlausa lið......

Eftirfarandi eru skrif mín í gær ......

Já Steingrímur, fólk er að mótmæla aðgerðaleysi þessara ríkisstjórnar, það verður að taka 20 til 30 % af höfuðstól lána, þá fyrst getur fólk í þessu landi lifað..... rétt naumlega..... það er búið að afskrifa skuldir gömlu bankanna.... samt rukka þeir fólk upp í topp..... og bankarnir verða feitari og feitari..... og fólk fátækari og fátækari........ hvaða réttlæti er í þessu...... ríkistjórn verður látin fara af fólkinu ef ekki verður tekið af höfuðstól....... annars á allt þetta gamla lið inni á þingi að fara...... það er búin að reikna það út að það er ódýrara að fella niður þessi 20-30 % af höfuðstól lána....... með því að gera ekkert kostar ykkur miklu miklu meira, bæði ríkisstjórn og banka....... það þarf ekki hagfræðing til að sjá þetta..... hagkerfið færi á stað um leið og þig gerið þetta........og þið eigið að láta Alþjóða-gjaldeyrissjóðinn fara norður og niður, þar eru eldgamlar hagfræði-kenningar á ferð, sem gera ekkert annað en að koma okkur í dauða-dæmda stöðu.....

Þegar fólk fær (fékk)  lán hjá banka fer (fór)  það í greiðslumat, til að athuga hvort það gæti borgað til baka........ það var ekkert talað um að þessi lán ættu eftir að hækka um helming, og í greiðslumati var  ekkert reiknað út hvort fólkið gæti borgað ef þessi lán hækkuðu um helming..... Af hverju var það ekki gert ????Venjulegt fólk sem gat borgað af lánum, átti fyrir mat, gat farið í frí, þetta fólk er núna á mörkum fátæktar, ef það borgar af lánum er ekkert eftir fyrir, fatnaði, hreinlætisvörum, lyfjum, lækniskostnaði, klippingu, tómstundum, bensíni, fríi, gjöfum o.s.f

Og þetta fólk sem tók lán fyrir húsnæði og getur ekki borgað núna er kallað öllum illum nöfnum, hafi ekki hugsað, lifað um efni fram og geti sjálfum sér kennt um, þetta er ekki rétt (getur verið að það sé í einhverjum tilfella) en flestir eru í þessari stöðu af því að bankarnir komu okkur þangað með hjálp ríkisstjórnar og útrásarvíkinga. Og sömu menn sitja áfram á þingi á sínum feita rassi, síðan eru útrásarvíkingar verðlaunaðir fyrir að setja okkur á hausinn og fá niðurfellingu...... HVAÐ MEÐ OKKUR ???????

Ég veit um mörg dæmi þar sem allur peningur er búin fyrir tuttugasta hvers mánaðar og eins veit ég um fólk sem fer ekki í afmæli, brúðkaup vegna þess að það á ekki fyrir gjöfum. Ef ég veit um mörg dæmi, hvað vita þá margir aðrir um sömu dæmi ???

Ég held að ALLIR sem eru að stjórna þessu landi, búi ekki í sama landi og við... þetta venjulega fólk..... 

 

 


mbl.is Auðmenn græða á uppboðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband