Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Plott eða er maðurinn alvarlega veikur ???

  Þegar opinberar manneskjur eins og Guðni segir af sér án skýringa, þá fara sögur á stað, hvað er í gangi ????

 Er þetta plott hjá honum, segir af sér núna til að geta komið ferskur inn í vor í kosningum. Og sagt við kjósendur.   Ég sýndi ábyrgð og sagði af mér.   Eða er karlgarmurinn bara orðin veikur, (ekki meint í niðrandi merkingu) maður er bara skilin eftir í lausu lofti. Errm

  


mbl.is Guðni segir af sér þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sofandi á verðinum. Vinnutími ráðamanna og Bankastjóra.

Menn hafa verið sofandi á verðinum, hvaða partur er það sem menn skilja ekki. Fólk vill Ríkistjórnina burt, Fjármálaeftirlitið burt, Seðlabankastjóra og stjórn burt, þessir menn eru gjörsamlega óhæfir til að gegna þessum stöðum, og það verður ekki friður í landinu fyrr en að þeir eru farnir frá, og uppbyggingarstarf getur hafist.  Ég hef mína skýringu á því af hverju svona er komið fyrir okkur, það hljóðar eitthvað á þessa leið:

 Vinnutími Ríkisstjórnar og Bankastjóra.

9.00        Starting time.

9.30        Arrive at work.

9.45        Coffee break.

11.00      Check e-mail.

11.15      Prepare for lunch.

12.00      Lunch.

  2.45      Browse the internet.

  3.00      Tea break.

  4.00      Prepare to go home.

  4.30      Go home.

  5.00      Finishing time.

  Svo geta menn velt því fyrir sér hvort þeir voru að vinna vinnuna sína. Pinch Sleeping
 


mbl.is „Eftir öðru að þjóðin fái upplýsingar með þessum hætti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólagjöfin í ár..........

 Var að fá þessa mynd í pósti með skilaboðum um að þetta væri jólagjöfin í ár,  sel það ekki dýrara en ég keypti það.  Einhverjir gætu móðgast, en ekki móðgast við mig ég er bara skilaboðaskjóða Blush image001.jpgpíla

ESB var það ekki draumur Hitlers ?????

 Það geta kannski aðrir sagt söguna, en var það ekki draumur Hitlers að leggja Evrópu undir sig ? Og svo skilst mér að ESB hafi ekki komið með ársreikninga síðan 2006, og það hafa horfið peningar úr sjóðum hjá þeim, og þeir hafa ekki hugmynd um hvert þeir fóru, þetta ESB er allt of stórt batterí, við eigum eftir að hverfa í þessari samkomu, og við eigum ekki eftir að fá sér meðferð þar, að halda það er bara barnaskapur. Og við eigum ekki að láta ESB, Breta eða Hollendinga hóta okkur eða kúga, málið er afar einfalt VIÐ HÖFUM EKKI EFNI Á AÐ BORGA.
mbl.is Samningar um Icesave eina leiðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er ég alveg hætt að skilja....

 Voru ekki Bresk stjórnvöld búin að lána tryggingarsjóði 800 milljónir punda til að greiða sparifjáreigendum icesave, og Bresk stjórnvöld ætluðu svo að rukka okkur um þessa peninga. 'Eg er alveg hætt að skilja þetta. Hvað eru þá þessir fulltrúar breskra sveitafélaga að gera hingað ??? Þeir eru búnir að fá sitt, allavega samkvæmt því sem Bresk stjórnvöld segja, eða var þetta bara ein af brellunum hans Brown's til að auka vinsældir sínar.

Svo svona í lokin þá eigum við ekki að láta kúa okkur, eða hóta án þess að gera eitthvað í því, mæli með að við köllum alla sendiherra heim frá þessum löndum Bretlandi og Hollandi. Komum okkur úr NATO, gefum ESB puttann, og bjóðum Rússa eða Kínverja velkomna, bjóðum þeim upp á lendingaraðstöðu, þá fyrst verður hlustað á okkur, og við fáum öll þau lán sem við viljum án skilyrða. Við eigum að nota stöðu landsins og vera með allar klær úti  í þessari erfiðu stöðu sem við erum í .  Þið   getið  rétt ímyndað  ykkur  upplitið  á  Bandaríkjamönnum  og  Bretum  ef við gerðum  þetta.


mbl.is Fulltrúar breskra sveitarfélaga á leið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög sláandi frétt á stöð 2.

 Var nauðsynlegt að berja fólk !!!??? það var hægt að taka fánan niður og þvo húsið. það getur aldrei verið réttlætanlegt að berja fólk, ég er að tala um það sem yfirlögreglumaður lemur stúlku á bak við Alþingishúsið, sjá fréttir á stöð 2.
mbl.is Eggjum kastað í Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heræfingar út um alla borg !!!???

 Hvað er þetta......... að lögreglan sé á HERÆFINGUM út um alla borg. ERU þeir  að æfa árás á borgara sem eru að fara að mótmæla á morgun. Það verður sem sagt  TAKA 2..... GAS GAS GAS GAS  EF ÞETTA ER RAUNIN, þá eru Björn og félagar komnir út á hálan ís, ef ráðist verður á fólk í mótmælum á morgun, þá fyrst verður allt VITLAUST..... VIÐ SKULUM BARA RÉTT VONA AÐ ÞEIR SÉU EKKI SVO VITLAUSIR. Shocking

Yfirgangur Breta......

  Ef sagan er skoðuð, þá hafa Bretar alla tíð haft óstjórnlega þörf fyrir að vera með yfirgang gagnvart öðrum þjóðum og komist upp með það, nema þá helst hjá okkur Íslendingum, og þeir skilja þetta ekki að við þessi litla þjóð skulum standa upp í hárinu á þeim, því venjulega standa allir með þeim.

Skoðum smá dæmi:

Þeir hafa ráðist á lönd í miðausturlöndum (krossferðirnar)

Þeir hafa ráðist á lönd í Afríku (nýlendustríð)

þeir hafa ráðist margsinnis á Frakkland.

Þeir eru enn með yfirgang á norður-Írlandi.

þeir fóru í stríð við Argentínu (Falklandseyjastríð)

Þeir eru í stríði við Afganistan.

Þeir eru í stríði við Írak.

Þeir fara í stríð ef Bandaríkjamenn fara í stríð, þeir elta eins og hundar.

Þeir fóru í stríð við okkur út af þorski.

Og núna er þeir komnir í stríð við okkur út af peningum, og kalla okkur terrorista, og skilja ekkert hvað við erum að Þrjóskast við að borga.

Niðurstaða mín eftir þessa LAUSLEGU athugun er: BRETAR ERU AÐ KAFNA ÚR FREKJU OG YFIRGANGI.


mbl.is Tæpur fjórðungur þjóðarinnar hefur undirritað ávarp til Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÝ SEÐLABANKASTJÓRN ???????

 Ný Seðlabankastjórn líka haaa..... ???  Seðlabanki Evrópu og Bretlands voru að lækka vexti í dag niður í 3% hvað með okkur haaa...???? Verðum við áfram með 18% vexti ??? óska eftir svari við þessum spurningunum !!!!
mbl.is Ný bankaráð fyrir vikulok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ERU MENN BÚNIR AÐ TAPA GLÓRUNNI.....

 Menn eru gjörsamlega búnir að tapa glórunni, það er ekki bara búið að skuldsetja mig heldur börnin mín og barnabörn. Gera þessir menn sér ekki grein fyrir að þegar lán er tekið þá þarf að borga það til baka og hver borgar það til baka ??? Auðmennirnir....Nei þeir borga ekki, en það voru þeir sem komu okkur í þessa vitleysu, nei nei þeir sitja en á auðæfum sínum og sitja sem fastast í sínum höllum, og við aumingjarnir sitjum í súpunni, það ætti að vera búið að handtaka þessa menn og innsigla allar skrifstofur þeirra og eignir. Svo sitja þessir bankastjórar áfram, hvað er það ??? Hvenær ætlar ríkisstjórinn að skilja að 90% af þjóðinni vill þessa menn burt ??? Það er auðvita ekkert hlustað á mig eða aðra aumingja í þessu land, eru menn ekki alltaf að tala um hversu vel menntuð þessi þjóð er !!! En ekki núna í augnablikinu !!!???  því það hentar ekki ríkisstjórninni !!! Heimska þjóð !!! Crying
mbl.is Bretar lána 800 milljónir punda vegna Icesave
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband