Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Þetta er það sem þeir þurfa að heyra

Áfram Joly................ næst á dagskrá, í fangelsi með þessa bankaræningja, ég er búin að finna stað fyrir nýtt fangelsi ef það er það sem stoppar að þessir menn fara í fangelsi. Víðines, Hrafnista er búin að vera með þetta húsnæði á leigu, en það er búið að segja upp leigunni, húsnæðið er í eigu ríkisins, svo er þetta frábær staður úti á nesi rétt við borginna og við hliðina á ruslahaugum borgarinnar, æðislegur ilmur sem leggur þarna yfir reglulega, ef þetta húsnæði var nógu gott fyrir gamla fólkið, þá er þetta nógu gott fyrir bankaræningja, mæli með þessu.
mbl.is Joly harðorð í garð Hollendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var það besta sem gat komið fyrir okkur

Ríkisstjórnin gerði stór mistök með því að skríða fyrir Bretum og Hollendingum, við Íslendingar skríðum ekki fyrir einum eða neinum, ennnnn það gerði ríkisstjórnin, það er búið að koma í ljós í dag og í gær hvaða hræðsluáróður ríkisstjórnin er búin að halda upp og bera á borð fyrir okkur Íslendinga, núna loksins skilja Bretar og Hollendingar hvað er að gerast, þetta verður bara til þess að við fáum betri samning, betri vexti og ríkisábyrgðina út, og í guðanna bænum sendið einhverja menn með viti í þessa samningaviðræður og í fangelsi með þessa bankaglæpamenn, af hverju ganga þeir enn lausir ?????

Ég verð að endurskoða hvar ég stend í stjórnmálum á nýju ári, það er komin tími á breytingu, sem hefur ekki gerst áður, hef verið mikil vinstri manneskja fram að þessu.


mbl.is Árni Þór: Staðan þung
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég sagði þetta.........

Að vera hrædd við Breta og Hollendinga og skríða fyrir þeim, kom okkur bara aftur á bak, við fengum virðingu heimsins þegar við stóðum upp í hárinu á Bretum í Þorskastríðinu, við fáum ekkert með því að skríða og vera hrædd við þá, við erum sterk þjóð og getum alveg samið betur, út með þessa háu vexti og ríkisábyrgð.

Eins og þeir vita sem hafa verið að fylgjast með fréttum í dag og gær þá eru Bretar að berjast við mikið frost þessa daganna, í Financial Times, undir þessari frétt er hægt að sjá svar frá Íslendingum, eitt svarið fannst með nokkuð gott, við höfum ekki tapað húmornum, þó allt annað sé farið.

People of Britain

Surrender and we will take our freezing weather back.

Best regards, Iceland.    

 (höfundur 'Iris Kristjáns)


mbl.is Ekki setja Ísland í skuldafangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gat nú verið.............

Gat nú verið, og þessi Mark og Alþjóðagjaldeyrissjóður eru heilagur andi, hvað kemur næst ????
mbl.is Vill varkárni í vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taugaveiklun.......

Ég skil ekki þessa taugaveiklun yfir þessari ESB-aðild, flokkarnir hafa bara ekkert með þetta að gera, það erum við kjósendur sem kjósum um þetta, þegar að því kemur, sem allir vita sem hafa eitthvað lesið sér til um þetta þá er það ekkert á næstunni, hvort sem okkur líkar betur eða ver.
mbl.is Áherslan á ESB lýsir taugaveiklun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áróður..........

Eru VG bara í ríkisstjórn ??? það gætu einhverjir vitleysingar eins og ég misskilið þessa frétt, enda sett upp í áróðursformi, eru ekki bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra úr Samfylkingunni. Hvaða bull er þetta ???? Á fréttin ekki að vera VG og Samfylkingin komu í veg fyrir að EFTA-ríkin samþykktu þjónustutilskipun ESB ?????
mbl.is VG stoppaði ESB-lögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gordon Brown hefur ekki hugmynd......

 Ég veit ekki af hverju Jóhanna ætti að hringja í Gordon ??? til að gera hvað, spyrja um hvað ??? Gordon hefur ekki minnstu hugmynd af hverju hann seti hryðjuverkalög á okkur, frekar en að hann hafi hugmynd um hvað hann er að gera í Bretlandi til að koma þeim út úr þessum efnahagshremmingum sem þeir eru í.  Svo ég sé ekki tilganginn í því að hringja í Gordon. Það á bara að gera þetta í gegnum lögfræðinga og Sendiráð, ekki að vera að eiða símtali í þessa aula sem geta ekki15206581_jpg_darling_og_gordon.jpg stjórnað sínu landi.
mbl.is Jóhanna hringi í Gordon Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband