Færsluflokkur: Fjölmiðlar

DAUÐAÞÖGN.................. Á VIÐ NÚNA............ORÐLAUS.

 þAÐ EINA SEM KEMUR FRAM  AF TILFINNINGUM HJÁ MÉR NÚNA  ER SORG..............
mbl.is Seðlabanki braut eigin reglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða vitleysa er þetta ???????

Er komin 1. apríl aftur, hvaða vitleysa er þetta, er enginn sem sér eitthvað að hér ?????

Var haft eftir Stefáni að bankareikningar hefðu verið tæmdir „fyrir framan nefið á ríkinu". Menn hefðu ekki áttað sig á því hvað menn hefðu verið flinkir í að skjóta undan eignum.

Menn áttuðu sig ekki á þessu........ ég er bara orðlaus............ Hvaða eignir á að frysta hjá þessum mönnum, þeir eru búnir að koma þeim undan fyrir löngu, hvar er þetta lið búið að vera, sofandi .

 


mbl.is Eignir auðmanna frystar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ ER ÞETTA ??? HVAÐ MEÐ ÍSLENDINGA ???

Vísir, 11. feb. 2010 14:21    Hvað er þetta ???? Hvað með Íslendinga ???? Nú verða menn að láta í sér heyra, ÆTLUM VIÐ ENDALAUST AÐ LÁTA BANKA OG RÍKISSTJÓRN TROÐA Á OKKUR, ER EKKI KOMIÐ NÓG ???

Þúsundir Svía fá tilboð um 40% afskrifir frá Kaupþingi

mynd
Um 3.200 Svíar hafa fengið tilboð frá Kaupþingi um 40% afskriftir af lánum sínum í bankanum þar í landi.

 

Kaupþing í Svíþjóð lánaði sparifjáreigendum þar í landi fyrir kaupum á skuldabréfum í Lehman Brothers. Voru lánin með veði í bréfunum. Heildarupphæðin á þessum lánum nemur um milljarði sænskra kr. eða tæplega 18 milljörðum kr. Umræddir Svíar fengu að jafnaði 350.000 sænskar kr. hver að láni frá Kaupþingi til þessara skuldabréfakaupa.

 

Kaupin á skuldabréfunum fóru fram í gegnum fjármálafyrirtækið Acta Kapitalförvalting. Í frétt um málið á vefsíðunni e24.se segir að fyrrgreindir 3.200 viðskiptavinir Acta fengu í síðasta mánuði rukkunarbréf frá norska innheimtufélaginu Lindorff um að borga lán sín.

 

Lindorff hafði tekið að sér að rukka inn þessi lán Kaupþings en deilt hefur verið um hver skuli greiða þau. Í dag fengu svo þessir viðskiptavinir Acta tilboð frá Kaupþingi um að þeir sleppa við að borga 40% af þessum lánum.

 

Þetta nýja tilboð Kaupþing felur í sér að bankinn kaupir aftur umrædd skuldabréf, sem voru grunnurinn fyrir fjárfestingum Svíana hjá Acta. Svíarnir fá 40% af nafnvirði skuldabréfanna, það er tapa 60%.

 

Á e24.se segir að þessu tilboði Kaupþings fylgi einn böggull skammrifi. Svíarnir verða að gefa frá sér allan rétt á lögsókn gegn Kaupþingi og Acta vegna þessara viðskipta.

 

Ennfremur segir þar að Kaupþing muni væntanlega tapa 120 milljónum sænskra kr. eða rúmlega 2 milljörðum kr. á þessu nýja tilboði sínu. Hinsvegar er ekki vitað hvernig Acta ætli að bæta Kaupþingi tapið.


Nei... við eigum að fá Breta og Hollending

Besta útspilið væri að fá Breska og Hollenska alþjóðalögfræðinga, fræga og virta í sínu landi sem tekið er mark á af Hollendingum og Bretum, það er skothelt, þá fyrst fer þessi skuld niður og vextir lækka, stendur ekki einhverstaðar, höldum vinum okkar nálægt og óvinum nær, farið nú að nota heilabúið þingmenn og ráðherrar.
mbl.is Vill þýskan sáttasemjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá þessa frétt á Vísir

 

Ótrúlegt að ríkisstjórnin skuli ekki hafa áttað sig á þessu, hvaða aular erum við að láta troða svona á okkur, hvar er þetta vel menntaða fólk sem á að vera til á Íslandi ??? og ef það er til, hvar var það þegar við vorum að semja um Icesave ???? Hvernig væri að við færum að notast við það besta sem við höfum í stað þess að notast við gamla pólitíkusa sem hugsa bara um afturendann á sjálfum sér.

 

 

 

Vísir, 08. jan. 2010 13:25

Icesave: Samningar taki mið af lagalegri óvissu

mynd
Dr. Michael Waibel.

Dr. Michael Waibel, sérfræðingur í alþjóðalögum við háskólann í Cambridge á Englandi segir enga klára lagaskyldu hvíla á herðum Íslendinga til þess að borga Icesave-skuldina.

Í lesendabréfi sem birtist í Financial Times í dag minnir hann á að engin alþjóðalög séu fyrir hendi sem þvingi Íslendinga til þess að borga. „Þetta er staðreynd sem Fitch tók ekki tillit til þegar ákveðið var að lækka lánshæfismat Íslands. Bretland myndi líklega mæta töluverðum hindrunum færi málið fyrir dóm," segir Weibl einnig og bætir því við að möguleika Breta á að vinna slíkt dómsmál séu í besta falli 60 prósent.

„Langdregin deila í réttarsal er engum til framdráttar í þessu máli," segir hann einnig og því ættu Bretar og Hollendingar að hans mati að fara að sýna alvöru vilja til málamiðlunar, „í stað þess að nýta sér mátt sinn innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og á öðrum sviðum til þess að fá sem mest í sinn hlut."

Allir samningar í Icesave málinu ættu því að taka mið af þeirri lagalegu óvissu sem er uppi um það hve mikið Íslendingar eigi í raun og veru að greiða. „Þessi óvissa ætti að leiða til verulegs afsláttar á heildarupphæðinni og ásættanlegrar vaxtaprósentu."

Weibler minnir að lokum á ráð sem Elihu Root fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna og friðarverðlaunahafi Nóbels gaf ráðgjafa sínum eitt sinn: „Við verðum ávallt að vara okkur á því, og sérstaklega gagnvart minni ríkjum, að stinga aldrei upp á sáttatillögu sem við sjálfir værum aldrei til í að samþykkja ef við værum í þeirra stöðu."


 


mbl.is Halda áfram með Íslandslánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki von að maðurinn skilji

hvaðan við komum, er sjálfsagt vanur að geta stjórnað öllum í kringum sig og allir hlíða honum, ef menn muna en eftir þrjóskunni í okkur á Bretlandi fyrir 30 árum ættu þeir að vita betur, að það er ekki svo auðvelt að snúa okkur, þeir læra greinilega ekki af reynslunni. Af hverju eigum við að láta undan þessum hótunum. Við skulum bara vera þrjósk og ósveigjanleg áfram og vera stolt af því, þó að við séum lítil þjóð þá erum við stór og sterk, og þar misreikna Bretar sig. Þessi Hattersley ætti bara að leggja frá sér pennan, þetta er bara sorglegt.
mbl.is Hinir þrjósku Íslendingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var það besta sem gat komið fyrir okkur

Ríkisstjórnin gerði stór mistök með því að skríða fyrir Bretum og Hollendingum, við Íslendingar skríðum ekki fyrir einum eða neinum, ennnnn það gerði ríkisstjórnin, það er búið að koma í ljós í dag og í gær hvaða hræðsluáróður ríkisstjórnin er búin að halda upp og bera á borð fyrir okkur Íslendinga, núna loksins skilja Bretar og Hollendingar hvað er að gerast, þetta verður bara til þess að við fáum betri samning, betri vexti og ríkisábyrgðina út, og í guðanna bænum sendið einhverja menn með viti í þessa samningaviðræður og í fangelsi með þessa bankaglæpamenn, af hverju ganga þeir enn lausir ?????

Ég verð að endurskoða hvar ég stend í stjórnmálum á nýju ári, það er komin tími á breytingu, sem hefur ekki gerst áður, hef verið mikil vinstri manneskja fram að þessu.


mbl.is Árni Þór: Staðan þung
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samþykkja eða ekki..................

Samþykkja eða ekki, það skiptir ekki máli í hvora átt hann hefði farið það hefði allt orðið vitlaust, mér finnst það fáránlegt að ráðast á hann, ráðist frekar á þá sem komu okkur í þessa stöðu, eða eru allir búnir að gleyma hverjir það voru, það er svo undarlegt með okkur hvað við erum fljót að gleyma, að vera með ásakanir fram og til baka kemur okkur ekkert, það gerir aðeins eitt, við stöðnum. Ekki það að þessir Icesave samningar eru að setja okkur aftur í fornöld...........Shocking sland_741386_jpg_sokkvandi_island_904563.jpg
mbl.is Bloggheimar loga vegna ákvörðunar forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bensín, olíufélög, Ríkið.

 

 

  Þetta er bara ekki hægt, ef bensínið heldur áfram að hækka, er ég ekki á leið í sumarfrí, skelfing eru Íslendingar vitlausir í markaðsmálum og hafa alltaf verið, skilja olíufélögin ekki að þeir eru að tapa á þessu, fólk hættir við að fara út á land og hverjir tapa þá, olíufélögin, og auðvita fólk sem á allt undir í ferðaþjónustu, og hvað kemur þá mikið inn í ríkiskassann ??? ekkert !!!! þessu liði er ekki viðbjargandi.

Source: mbl.is
- Skopmyndir eftir Halldór á mbl.is

 


Varstu skáti á tímabilinu 1962 til 1964 ?????

Ef svo er þætti mér vænt um að þú hefðir samband við mig. Sérstaklega ef þú ert ein að þeim sem fóru í heimsóknir til barna (um jól) á ríkisrekin  barnaheimili (Silungapoll) til að færa þeim jólagjafir. Ég er eitt af þessum börnum og er að rannsaka gjafaferðir skáta jólin 1963 sem voru örugglega farnar í góðri trú um að þeir væru að gera góðverk, sem var síðan ekki raunin. Þegar þeir voru farnir af svæðinu, þá kom annað í ljós, ef einhver man eftir þessum ferðum væri mjög gott að heyra þeirra sögu, sem var örugglega farin í góðri trú og þeir ekki vitað betur og vita sennilega ekki annað í dag. Ef þú veist eitthvað um þessar ferðir getur þú svarað mér hér á blogginu eða sent mér línu á sivva@visir.is og skilið eftir símanúmer og ég hef samband við þig. Með fyrirfram þökk.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband