Einelti er sálar skemmandi

 Ég hef orðið fyrir mjög slæmu einelti bæði líkamlegu og andlegu, þeir sem leggja í einelti ættu að hafa það í huga að  venjulega eru þetta einstaklingar sem eitthvað mikið er að hjá (sem leggja aðra í einelti) Þegar ég var lögð í einelti var ég 13 til 16 ára, þetta var skelfilegur tími fyrir mig, og afleiðingarnar voru þær að ég hætti að treysta fólki, og það eimar að þessu enn í dag. Smá dæmi hvað var gert við mig, ég var með mikið ljóst hár, nokkrar stelpur tóku sig sama og fóru með mig inn á klóset og tóku hausinn á mér og héldu ofan í klósetinu svo hárið og andlit fóru ofan í vatnið síðan var sturtað niður aftur og  aftur, þegar sturtað var niður fann ég hvernig hárið á mér sogaðist inn í rörið og hvernig vatn fór inn í nefið á mér aftur og aftur,þegar ég  barðist  við  að ná  andanum. þetta var bara SMÁ dæmi um það sem ég fór í gegnum. Þegar ég mæti þessum konum í dag þá snúa þær við eða horfa niður, og forða sér. Það sem mér finnst vera alfarlegra, er að sonur minn var lagður í einelti í skóla, þar sem ég hafði verið lögð í einelti, sá ég strax hvað var að gerast, ég barðist við skólakerfið í ein 4.ár og ekkert gekk, ég talaði margsinnis við kennara, skólastjóra, foreldra, sálfræðinga,skólaskrifstofur, allir lofuðu að koma þessu í lag enn ekkert gerðist, þegar sonur minn var síðan fyrir alfarlegri líkamsárás inni á skólalóð, þar sem var sparkað í höfuðið á honum aftur og aftur, var mér allri lokið, ég tók hann úr skólanum, ég kærði atburðinn, lögreglan fór heim til drengsins sem gerði þetta og talaði við foreldra hans,þeim var gert grein fyrir hversu alfarlegt þetta væri, þau spurðu þá hver þetta væri, þeim var sagt það, þá sögðu þau,,,,, já hann er svo skelfilega leiðinlegur og svo er mamma hans eitthvað biluð ,,,, svo  þetta  var  nú  í  lagi  að  berja  strákinn  aðeins....  Lögreglan  kom  inn  á  bráðamóttöku  eftir  þetta  samtal,  og sögðu  mér  frá  þessu, þeim var greinilega brugðið. Afleiðingarnar af þessu einelti  hjá honum eins og hjá mér er að við eigum alltaf von á því versta frá fólki. 'Eg setti son minn í mjög góðan einkaskóla, þar sem hann blómstraði, núna er hann í menntaskóla og gengur vel. 
mbl.is Ódæðismaðurinn hringdi í vin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl.

 Góður (afstætt efninu) pistill Það er með ólíkindum hvað manneskjan getur lagst lágt.

Takk fyrir birtinguna.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 03:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband