Myndefni sem hefur ekki stimpil frá Útvarpsráði.
27.11.2008 | 02:48
Þetta hefur verið svona frá upphafi sjónvarps á Íslandi, það skal enginn segja mér annað, það eru örugglega til myndefni og fréttir sem þykja ekki birtingarhæft, enda er þetta ríkissjónvarp með fulltrúa frá flokkunum sem sitja í útvarpsráði. Stundum getur verið réttlætanlegt að birta ekki myndefni eða frétt, en hver er það sem tekur ákvörðun um það ??? fréttastjóri eða útvarpsráð ??? Ég tel að við fólkið í landinu (kjósendur) höfum rétt á að vita hvernig háttsettir menn haga sér. þegar fréttamenn eru að reyna að fá fréttir fyrir okkur,( því jú fréttamennirnir eru þeir sem eru milliliður fyrir kjósendur) Að kasta frétt í loftið án þess að skoða málið vel getur verið varasamt, við verðum að geta treyst fréttamönnum, að þeir séu að fara með rétt mál. Það á ekki að koma fram við okkur eins og við séum vitlaus. Er ekki alltaf verið að tala um hvað við séum gáfuð og vel menntuð þjóð, bara ekki núna því það hentar ekki !!!???
Vilja að RÚV biðji þjóðina afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkar: Menntun og skóli, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 02:50 | Facebook
Athugasemdir
Svo sammála þér. Ritskoðun og klíkumyndun haftaáranna! Here it comes!
Vilborg Traustadóttir, 28.11.2008 kl. 23:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.