Setur þau í járn og fer með suður í Reykjanesbæ.....

 þetta hljómar eitthvað á þessa leið. Þetta er nú meiri hrokinn hjá Heilbrigðisráðherra. Ætlar hann að taka þetta starfsfólk og setja það í járn smala því upp í rútu á hverjum morgni og senda þau í biltúr í 20. til 30 mín suður í Reykjanesbæ, er ekki í lagi hjá honum ??? Þetta kallast ekki sparnaður heldur tilfærsla, því  jú... einhverju gáfnaljósinu datt í hug að stofna nýjar deildir í Reykjanesbæ, en þessar deildir eru nú þegar til staðar hjá St. Jósefsspítala og í Reykjavík, og þetta kallast sparnaður ??? Ég skora á einhvern að koma vitinu fyrir Heilbrigðisráðherra,  jú hann gæti leitað sér lækninga við þessu á St. Jósefsspítala.
mbl.is Eins og maður hafi verið skotinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Þetta er fáránleg ráðstöfun. St Jósefsspítali er besti spítali landsins. Þar starfar fólk sem hefur þá sérstöðu að starfa í líknandi anda St Jósefssystra. Þú flytur það ekki suður með sjó "í járnum" (vel orðað hjá þér) og sú hugsjón verður aldrei metin í peningum.

Heimskir menn geta þó eyðilagt mikið og það er synd ef það tekst í þessari atlögu því margar hafa verið gerðað að St Jósefsspítala í hagsmunakapphlaupi smákónganna í heilbrigðiskerfinu.

Vilborg Traustadóttir, 8.1.2009 kl. 12:53

2 Smámynd: Sigurveig Eysteins

 Ég ætla bara rétt að vona  að Lúlli bæjarstjóri komi okkur hér í Hafnarfirði til bjargar. Það væri ekki gott mál ef við látum 'Arna í Reykjanesbæ vaða yfir okkur á skítugum skónum, ég tala nú ekki um gagnljósið heilbrigðisráðherra.

Sigurveig Eysteins, 8.1.2009 kl. 17:05

3 identicon

Við þurfum hreinlega að koma sjálfum okkur til bjargar, Hafnfirðingar! Það er bara tímaspursmál hvenær þessi afglapi dettur úr embætti heilbrigðisráðherra, það verður að passa upp á að hann rústi ekki heilbrigðismálunum alveg meðan hann lafir inni ... við látum bara ekki taka spítalann af okkur!

Ragnheiður Gestsdóttir (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 10:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband