Færsluflokkur: Menning og listir

TONNATAK Í STÓLUM SEÐLABANKANS ???

  Það er tonnatak í stólum Seðlabankans, eða er það bara HROKI, HROKI, OG AFTUR HROKI, ekki fram í rauðan dauðan eiga þessir menn eftir að segja af sér, þeir ætla ekki að enda feril sinn á því að segja af sér eða að vera sagt upp, það væri hræðilegt fyrir þessa menn !!! Geir talar um að við megum ekki persónugera.... Þá spyr ég á móti, er það ekki hann sem er búin að persónugera, er það ekki hann sem er besti vinur ??? samkvæmt skoðanakönnun eru 90% þjóðarinnar ekki vinir manna í Seðlabankanum, kallast þetta ekki að persónugera Geir. Hver er þá að persónugera ??? Pinch
mbl.is 15% gengisfall krónu í kortunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjar myndir. Skartgripir.

 Ég var að setja inn nýjar myndir af skartgripum sem ég geri. þeir sem hafa áhuga á frekari upplýsingum geta haft samband við mig í gegnum tölvupóst. Ég kem í heimahús (saumaklúbba), þær sem vilja halda kynningu heima hjá sér, fá gefins armband. Mjög sniðugar jólagjafir eða tækifærisgjafir, Hafið endilega samband og skiljið eftir símanúmer og ég hef samband strax. Verðið er mjög hagstætt frá 2.500 til 15.000 kr. Hver skartgripur kemur í fallegri gjafaöskju.

Góður... sendum afrit á alla fjölmiðla í EVRÓPU.

 Þetta er algjör snilld........   sendum afrit af þessari frétt til allra fjölmiðla í Evrópu. Og allar þessar myndir.Pinch Tounge
mbl.is Breska heimsveldið hörfaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verið að bæta ímynd sína á okkar kosnað !!!!!

 Eru þeir ekki bara að reyna að bæta (bjarga) ímynd sína, G Brown og Darling búnir að gera upp á bak gagnvart okkur Íslendingum, og svo eru þeir að reyna að laga stöðu sína í uk. Vonandi erum við ekki að falla fyrir þessu. Sendum þá heim aftur með pundið og sjáum hvað gerist þá, hvaða fyrirsagnir verða þá í uk. blöðunum ???  Á endanlega að ganga frá þjóðarstoltinu ??? Það er sem sagt ekki nóg með að það sé verið að henda fólki út úr búðum og íbúðum þarna úti, það næsta er að þeir hafi bjargað okkur upp úr skítnum, og ekki nóg með það þeir eiga líka að verja okkur fyrir öllum óvinunum !!!  þetta er nú að verða meira ruglið, hvað kemur næst ???!!! Shocking
mbl.is 580 milljarða lán frá Bretum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða partur er það sem menn skilja ekki ????

  Hvaða partur er það sem þú skilur ekki , viltu útskýra það fyrir mér ???!!! Þetta orðaval hef ég stundum notað á börnin mín, þegar þau gera eitthvað að sér,( sem er bannað)  en eru að gera í hundraðasta skipti,  ég sest þá niður með þeim og reyni að skilja þau. Mér finnst ríkisstjórnin vera í sömu sporum og börnin mín hafa verið stundum. Það þarf einhver að setjast niður með ríkisstjórninni og útskýra fyrir þeim að þeir eru að gera hræðileg mistök. Þetta er allt spurning um TRAUST og að taka  HROKANN út.  það sem þeir hefðu átt að gera fyrir löngu, svo þeir fái vinnufrið... það er að skipta út ÖLLUM í Seðlabankanum, bankastjórunum og stjórn Seðlabankans, og setja bara menn inn sem eru Sérfræðingar, hagfræðingar, viðskiptafræðingar, og rekstrarfræðingar í alla stóla, pólitíkusar eiga ekki að vera í þessum stöðum..... ÖLLUM hjá Fjármálaeftirlitinu, það er óþolandi að þeir skuli vera komnir með þetta vald (hálfgert alræðisvald) og þarna sitja sömu menn  áfram. Voru það ekki þessir sömu menn sem voru ekki að vinna vinnuna sína ???  Áttu þessir menn ekki að hafa eftirlit með bönkunum ??? þeir voru sem sagt verðlaunaðir fyrir vel unnin störf !!!! Næst fá þeir Fálkaorðuna !!!! Það getur hvaða bjáni úr símaskránin séð þetta, eða hvað ???  Ráðamenn þið verðið að byrja á réttum enda, áður en verkið hefst, það er ekki hægt að byrja á þakinu þegar hús er byggt, eða hvað ???...... Númer 1. 2. og 3. er að byrja á TRAUSTI OG HROKA, þá kemur afgangurinn hægt og rólega, er það ekki ???  Pinch Undecided
mbl.is Stjórnvöld skilningslaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráð til ykkar sem eruð að hugsa um að gefast upp....

 Þið sem eruð að missa vinnuna og hafið verið að tapa peningum og eruð að hugsa um að gefast upp.....Þá langar mig að biðja ykkur að staldra aðeins við og hugsa. (Ég hef gengið í gegnum miklar hörmungar þessi 50. ár sem ég hef lifað, án þess að fara út í það), þá hefði ég ekki viljað missa af öllum stóru stundunum í lifi barnanna minna og barnabarns. Öllum góðu stundunum, fyrsta brosinu, fyrsta hlátrinum, fyrsta orðinu, fyrsta skrefinu, fyrsta skóladegi, útskriftinni og gleðinni sem fylgir því, fyrsta kærastanum og gleðinni og spenningnum í kringum það, vera til staða þegar fyrsta ástasorgin  pompar upp á, vera til staða þegar þeim líður ekki vel, vera til staða þegar gelgjan bankar upp á, hjálpa þeim að komast í gegnum heimalærdóminn, hjálpa þeim að komast í gegnum sorgina, vera til staðar þegar þau verða veik. Tilhugsunin um að ég hefði ekki verið með þeim við öll þessi tækifæri skelfir mig. Það er svo mikið sem við getum gert með börnunum okkar, mökum, foreldrum, og vinum án þess að það kosti eitthvað, og það fyrsta sem við ættum að gera, það er að faðma og kyssa okkar nánustu og segja við þá; ég elska þig hræðilega mikið og ég get ekki verið án þín, og ég mæli með að við gerum það daglega. Smile
mbl.is Boðin launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóður 9 og greiðsluþjónusta. Aðvörun.

 Ég er með (var) sparnaðarreikning í sjóði 9. þar sem ég er í greiðsluþjónustu, þá fóru greiðslur inn á sparnaðarreikninginn sjálfkrafa um hver mánaðarmót, og gerðu það líka þessi mánaðarmót !!!! þó að allt væri komið í vitleysu og ekki hægt að taka út úr sjóði 9. (það skal tekið fram að greiðsluþjónustan mín er millifærð 5. hvers mánaðar) Svo þið sem eruð í greiðsluþjónustu og eruð með sparnaðarreikning athugið þetta. Það er sem sagt hægt að leggja inn á þessa sjóði ennþá. Ennn... ekki hægt að taka út. Hvaða bjáni gerir það, auðvita ég...... Shocking Pinch
mbl.is Peningarnir týndust í kerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfilega var Egill dónalegur........

 Þetta viðtal var mjög ómálefnalegt og dónalegt, sló út með að spyrja í lokin,,,,,  hvað ætlarðu að gera í dag ???!!! kom út eins og að Egill væri að fullvissa okkur um að Jón Ásgeir væri örugglega að vinna í dag . Hvað kemur okkur það við hvernig Jón Ásgeir ver sunnudeginum eða gerir við sínar persónulegu eignir, þó hann skili fyrirtækjaeignum?????  Egill þú þarft að gá að þér,,,, annars ágætir þættir, bara ekki þessi. Pinch
mbl.is Jón Ásgeir: Fær ekkert út úr sölunni á Baugsfyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri steypan!!! Írum fannst við æðisleg með klippurnar á lofti.

 Þetta er nú meiri steypan, eins og ég hef sagt hér í bloggi þá eru Bretar ennnnn  að velta sér upp úr því hvað við vorum vond við þá í þorskastríðinu, skelfilega langrækin þjóð.

 Ég fór til Cornwall á Englandi 2007 til að fara á Háskóla, í hádeginu fór ég alltaf á sama pöbbinn til að fá mér að borða, þessi pöbb var niður við höfnina, og þangað komu mikið af ferðamönnum sem voru á skútum, þar sem ég var að rolast þarna einn, kom fólk til mín og spjallaði og auðvita vildi það vita hvaðan ég kæmi, ég var mjög fljót að svara (mjög stolt) " frá Íslandi " (veit ekki hvort ég væri jafn stolt í dag) Eitt sinn eftir skóla fór ég á pöbbinn, ég var rétt sest niður með kaffið mitt og blöðin þegar inn komu fimm Írskir karlmenn, ( miðaldra  Háskólaprófessorar á leið til Frakklands á skútu)  þeir settust á næsta borð við mig, eftir smá stund vorum við farin að spjalla, og talið barst að þorskastríðinu, þeir sögðu mér að Írar hefðu haldið með okkur í þorskastríðinu, og þeir sögðu mér að Írum hefði fundist við æðisleg að stand upp í hárinu á Bretanum, og í hvert skipti sem við hefðum notað klippurnar, hefði verið mikil kátína á pöbbum á Írlandi, rétt eins og um mark hefði verið skorað í fótboltanum. Síðan spurðu þeir: hvar eru klippurnar niðurkomnar? (þar sem ég vissi ekki hvar þær voru) svaraði ég: við byggðum safn utan um þær!!!  þetta fannst þeim hryllilega fyndið. Svo við ættum kannski bara að leita til Írlands eftir hjálp. þeir hafa að minnsta  sama húmorinn og við.


mbl.is Íslendingar þrjóskir og ósveigjanlegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rólegan,rólegan,rólegan æsing.....

  Nú eru menn gjörsamlega búnir að missa sig, ég var inni á sky news(net) rétt áðan, það nýjasta hjá þeim er að þeir séu komnir í stríð við okkur Íslendinga." Sendum byssubátana á þá"  Menn tala um að Brown gæti bjargað sér frá falli með því að hertaka landið, eins og þeir segja þá eru Íslendingar ekki með her svo þetta ætti að vera auðvelt, Margret Thatcher var í þessari stöðu 1982, að vera svona óvinsæl, hún bjargaði sér út úr því með að ráðast inn í Falklandseyjar, og hún náði endurkjöri 1983. Það skal tekið fram að þetta eru ekki brjálaðar hugsanir hjá mér, heldur það sem ég las inni á sky news. Ég segi  nú bara eru menn gjörsamlega búnir að missa vitið þarna úti í Bretlandi. Nú er ég hætt að blogga, farin upp á Slysó með hjartaáfallllll Sick
mbl.is Neyðarfundur um fjármálakreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband