Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Skelfilega var Egill dónalegur........

 Þetta viðtal var mjög ómálefnalegt og dónalegt, sló út með að spyrja í lokin,,,,,  hvað ætlarðu að gera í dag ???!!! kom út eins og að Egill væri að fullvissa okkur um að Jón Ásgeir væri örugglega að vinna í dag . Hvað kemur okkur það við hvernig Jón Ásgeir ver sunnudeginum eða gerir við sínar persónulegu eignir, þó hann skili fyrirtækjaeignum?????  Egill þú þarft að gá að þér,,,, annars ágætir þættir, bara ekki þessi. Pinch
mbl.is Jón Ásgeir: Fær ekkert út úr sölunni á Baugsfyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri steypan!!! Írum fannst við æðisleg með klippurnar á lofti.

 Þetta er nú meiri steypan, eins og ég hef sagt hér í bloggi þá eru Bretar ennnnn  að velta sér upp úr því hvað við vorum vond við þá í þorskastríðinu, skelfilega langrækin þjóð.

 Ég fór til Cornwall á Englandi 2007 til að fara á Háskóla, í hádeginu fór ég alltaf á sama pöbbinn til að fá mér að borða, þessi pöbb var niður við höfnina, og þangað komu mikið af ferðamönnum sem voru á skútum, þar sem ég var að rolast þarna einn, kom fólk til mín og spjallaði og auðvita vildi það vita hvaðan ég kæmi, ég var mjög fljót að svara (mjög stolt) " frá Íslandi " (veit ekki hvort ég væri jafn stolt í dag) Eitt sinn eftir skóla fór ég á pöbbinn, ég var rétt sest niður með kaffið mitt og blöðin þegar inn komu fimm Írskir karlmenn, ( miðaldra  Háskólaprófessorar á leið til Frakklands á skútu)  þeir settust á næsta borð við mig, eftir smá stund vorum við farin að spjalla, og talið barst að þorskastríðinu, þeir sögðu mér að Írar hefðu haldið með okkur í þorskastríðinu, og þeir sögðu mér að Írum hefði fundist við æðisleg að stand upp í hárinu á Bretanum, og í hvert skipti sem við hefðum notað klippurnar, hefði verið mikil kátína á pöbbum á Írlandi, rétt eins og um mark hefði verið skorað í fótboltanum. Síðan spurðu þeir: hvar eru klippurnar niðurkomnar? (þar sem ég vissi ekki hvar þær voru) svaraði ég: við byggðum safn utan um þær!!!  þetta fannst þeim hryllilega fyndið. Svo við ættum kannski bara að leita til Írlands eftir hjálp. þeir hafa að minnsta  sama húmorinn og við.


mbl.is Íslendingar þrjóskir og ósveigjanlegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rólegan,rólegan,rólegan æsing.....

  Nú eru menn gjörsamlega búnir að missa sig, ég var inni á sky news(net) rétt áðan, það nýjasta hjá þeim er að þeir séu komnir í stríð við okkur Íslendinga." Sendum byssubátana á þá"  Menn tala um að Brown gæti bjargað sér frá falli með því að hertaka landið, eins og þeir segja þá eru Íslendingar ekki með her svo þetta ætti að vera auðvelt, Margret Thatcher var í þessari stöðu 1982, að vera svona óvinsæl, hún bjargaði sér út úr því með að ráðast inn í Falklandseyjar, og hún náði endurkjöri 1983. Það skal tekið fram að þetta eru ekki brjálaðar hugsanir hjá mér, heldur það sem ég las inni á sky news. Ég segi  nú bara eru menn gjörsamlega búnir að missa vitið þarna úti í Bretlandi. Nú er ég hætt að blogga, farin upp á Slysó með hjartaáfallllll Sick
mbl.is Neyðarfundur um fjármálakreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eru allir þessir erlendu fréttamenn að gera hér ???

  víst þeir geta ekki komið skilaboðum rétt frá sér. Ég hef verið að horfa á sky news núna í kvöld, og farið inn á fréttavefi erlendis, þar er hvergi minnst á að íslenska ríkið ábyrgist innistæður í erlendum bönkum!!! Eru það íslensk stjórnvöld sem ekki geta komið þessu rétt frá sér eða eru það erlendir fréttamenn sem geta ekki komið þessu rétt frá sér??? Eða er það bara meira krassssssandi að setja fréttina svona frá sér??? Eða er Brown að reyna að auka vinsældir sínar á kostnað Íslendinga??? Ég hallast helst á þá kenningu, (eins og ég bloggaði um í gær). Ég held að ríkisstjórnin ætti að gera eins og Brown gerir, ráða til sín áróðursráðgjafa sem segir okkur hvernig við eigum að fara að þessu (verður að tala ensku)  til að koma þessum upplýsingum inn í hausinn á Bretanum. Það gæti orðið erfitt því Bretinn stendur enn í þeirri trú að við höfum stolið af þeim þorskinum 30. árum síðar. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þeir verða lengi að fyrirgefa okkur núna, við erum ekki lengur að tala um þorsk heldur peninga Pinch
mbl.is Mjög óvinveitt aðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brown greinilega búin að fá sér markaðsfræðing á kosnað Íslendinga.

 Þegar menn hafa verið jafn óvinsælir og Brown er búinn að vera heimafyrir síðustu mánuði, verða þeir að gera eitthvað til að ná vinsældum aftur, og við Íslenska  þjóðin erum bara svo óheppin að hann notar okkur W00t Og Bretar halda að Brown sé að gera eitthvað, og vinsældir hans fara upp. Þetta er gott skólabókadæmi hvernig ná á vinsældum aftur hjá þjóðinni. Svo ég held að hann hafi ráðið sér góðan markaðsfræðing. Annars erum við bara í djúpum sk... hvert sem litið er. Pinch
mbl.is Hryðjuverkalög gegn Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússa-grýlan.... Heilastormur....

 Víst Rússarnir ætla að koma okkur til bjargar, er þá ekki hægt að biðja þá svona í leiðinni, að sjá um vöruflutninga fyrir okkur frá Evrópu, það ætti ekki að kosta þá neitt aukalega, eða hvað !!!??? þeir eru að eyða bensíni alla þessa leið... Um að gera að nota sér farið eða hvað !!!???   Nei... bara smá heilastormur hjá mér... Já, ég er í heilastormi þessa dagana, hvað getum við gert til að spara ??? Og svona að lokum ráðamenn þið sem eru að fara út til að ná í gjaldeyrir til Rússlands, reynið nú að fá ókeypis gistingu í einhverjum af þessum höllum sem þeir eiga þarna úti og passa upp á að morgunmatur sé innifalinn, þetta allt sparar okkur gjaldeyrir...

Chronic Socialist það er það sem við erum Íslendingar

  samkvæmt bloggsíðu á Sky News og við hjálpuðum þjóðverjum í stríðinu í seini heimstyrjöldinni og það er bara gott á okkur hvernig komið er fyrir okkur, við stálum af þeim þorskinum, og núna þurfa þeir að kaupa hann af okkur dýru verði, ef ykkur langar að lesa, þá er þetta frétt á Sky news undir world news og fréttin heitir: Frosty Times: Why Iceland matters, góða skemmtun.  Pinch
mbl.is Baksvið: Hvaða „vinir" brugðust?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Martröð, núna vill ég vakna takkkkk....

  Þetta er hræðileg martröð, og núna vill ég vakna, það er eins komið fyrir mér og ríkisstjórninni, við erum bæði sofandi, ég með martröð sem ég vakna ekki upp af............ Ennnnn þeir sofa vært á sínu græna Shocking Crying
 
mbl.is Ekki þörf á aðgerðapakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða vitleysa er þetta ???

  Getur það verið að fjölmiðlar erlendis viti meira en við ???  Þetta getur bara ekki verið !!!  Ég sem ætlaði að fara að hæla Geir fyrir að tala við fjölmiðla (íslenska) og leifa okkur aumingjunum að fylgjast með. Ég vill fá skriflega staðfestingu á þessu, þetta getur bara ekki verið rétt, ef svo er þá er eitthvað mikið að,   því trúnaður við kjósendur (á Íslandi) hlýtur að ganga fyrir.....  er þetta ekki bara frétt sem þeir þarna úti hafa búið til ??? Eigum við að vera áfram í kyrrþey á meðan heimurinn fær allar upplýsingar á silfurfati ???
mbl.is Rætt við norræna seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jörðuð í kyrrþey.......

  Látið lífeyrissjóðina vera.  Horfði á kastljós áðan, þar var Hannes Hólmsteins, nú veit ég hvaðan þessar  kyrrþey  hugmyndir koma, hvernig væri að jarða ríkisstjórnina í kyrrþey, mikið skelfing er ég orðin þreyt á þessum hroka, hverjir eiga lífeyrissjóðina???  Er þetta eina útspilið sem ríkið hefur??? Stela af gamla fólkinu !!!!!!
mbl.is Lífeyrissjóðir komi að lausn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband