Færsluflokkur: Menntun og skóli
Skelfilegur hroki og blinda
16.1.2009 | 05:41
Maðurinn veit ekkert hvað hann er að tala um, þetta kallast hroki. Þeir sem eru ekki lesblindir geta ekki með nokkru móti sett sig í spor þeirra sem eru lesblindir og ættu ekki að gera það. Ég er lesblind og ég grét yfir því allt fram að tvítuggu að geta ekki lesið og skrifað rétt, og ég tala nú ekki um skömmina yfir þessu. því kennarar og foreldrar pössuðu upp á að viðhalda þessari skömm, það voru alls konar aðferðir notaðar við að kenna mér að lesa og ekkert gekk. Ég hætti í skóla þegar ég var í 3. bekk í gagnfræðaskóla, eftir að skólastjóri í þeim skóla sem ég var í hafði sagt mér að ég væri fáviti og gæti ekki verið í skóla, og að það yrði ekkert úr mér, ég skildi bara fara suður og fara að vinna í fiski, því það væri sennilega það eina sem ég gæti gert. Og ég fór eftir því sem hann sagði mér og fór suður og hætti í skóla. Þegar ég þorði svo loksins að fara í skóla aftur kominn yfir 20. árin, uppgötvaðist þetta og ég fékk þá hjálp sem ég þurfti. Ég er með margar útskrifir úr skólum og fæ alltaf 8-9-og 10. Það er mesti misskilningur að fólk með lesblindu sé ekki gáfað, venjulega eru þetta mjög gáfaðir einstaklingar. Dóttir mín er líka lesblind og ég sá til þess að hún grét ekki yfir því. í dag er hún Hjúkrunarfræðingur og gengur vel.
kannski getur þessi saga hjálpað einhverjum.
Segir lesblindu afsökun menntakerfisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 05:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Af hverju ?????
16.1.2009 | 02:38
Af hverju hlusta ráðamenn ekki á fólkið í landinu ???
Það verður að frysta verðtrygginguna og lækka vexti strax.
Ætlar ríkið að eignast 50% af heimilum í landinu ???
Af hverju verða bankarnir að hafa allt sitt á þurru???
Af hverju taka bankarnir ekki á sig tapið á gjaldþroti landsins ???
Af hverju þurfa heimilin að taka þetta á sig ???
Við borgum og borgum og lánin hækka og hækka.
Og þegar (ef) verðbólgan fer þá fer verðbólguhækkun ekkert, við sitjum uppi með hana.
Af hverju þarf að bjarga bönkunum og fyrirtækjum fyrst ???
Ef heimilin fara á hausinn þá eru ekki viðskipti við fyrirtækin eða bankanna.
Þarf ekki að bjarga heimilunum fyrst ???
Ráðamenn verða að fara frá, við verðum að fá tækifæri til að byrja upp á nýtt.
Það gerist ekki með þetta gamla spillingarliði við stjórn.
þessi skrif hafa ekkert með pólitík að gera heldur sjálfbjargarviðleitni og áhyggjur.
Stofnfundur Samtaka heimilanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 03:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sér það sem við öll sjáum....
11.1.2009 | 05:30
Carsten Valgreen sér það sem við öll (næstum) erum búin að sjá fyrir löng, löngu, löngu, nema auðvita Ríkisstjórnin, Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið þeir eru gjörsamlega blindir. Hvað þarf til að koma þessu liði frá ???
Mynd: svona er bankakerfið núna.....
Íslensk stjórnvöld harðlega gagnrýnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Snara er um hálsinn á fyrirtækjum........
11.1.2009 | 00:13
Fyrirtæki hanga í snöru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvaða rugl er þetta ????
10.1.2009 | 03:31
3. mánuðir ???!!! Þetta er bara hræðilegt, menn eru búnir að hafa 3. mánuði til að fara yfir gögn og eyðileggja þau. Er ekki nokkur manneskja með viti í ríkisstjórninni ??? Hrikalega er ég orðin þreytt á þessari vitleysu. Hvað er hægt að gera til að koma þessum mönnum frá ??? Það á ekkert óeðlilegt eftir að koma frá þessari nefnd, því þeir eiga ekki eftir að finna neit, það er löngu, löngu búið að brenna það. Þetta er tímaeyðsla og peningaeyðsla. Það er bara svart... fyrir hornið.....
Öryggi rannsóknargagna tryggt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 03:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Setur þau í járn og fer með suður í Reykjanesbæ.....
8.1.2009 | 03:50
Eins og maður hafi verið skotinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þetta er bara ekki nóg.........
6.1.2009 | 06:45
Endurgreiddi 370 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sá réttur okkar til að mótmæla er í hættu.....
31.12.2008 | 16:18
Fólk slasað eftir mótmæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Á götuna.....
9.12.2008 | 06:05
Hiti í fólki í Háskólabíói | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Voru þau ekki bara að kalla og öskra ???
9.12.2008 | 03:59
Sem sagt að mótmæla, þannig skildi ég þessa frétt. Það er svo ekki fyrr en að öryggisverðir og lögregla kemur á staðinn að allt fer í háa loft. Þá er spurningin hver var með ofbeldi ??? Vantar ekki bara Sálfræðing við hurðina á Alþingi ??? Ég hefði frekar gert hlé á fundi og boðið öllum hópnum í heit kakó og leift þeim að tala við einhvern eða einhverja alþingismenn, ég hef ekki trú á að þetta séu slæmir krakkar, bara munurinn á þeim og okkur er að þau þora, en ekki við.
Baráttu-kveðjur til ykkar frá ömmu.
Ólæti á þingpöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |