Gott fyrir Kennara að vita.

 Ég fékk þessa sögu í tölvupósti, fannst hún æðisleg, hún getur örugglega hjálpað  mörgum Kennaranum til að auka sjálfsmat nemanda. Ég vildi að mínir kennarar hefðu gert þetta, það hefði bjargað miklu hjá mér hvað sjálfsmat varðaði  þegar ég var unglingur. Endilega lesið til enda.

 

 

Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað.  Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli.
Síðan bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til  kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og  safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.  Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu  þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu  skrifað. Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu  máli. Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.

Lífið hélt áfram.

Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað að vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og  spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna  henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn  hafði fengið honum fyrir mörgum árum. "Þakka þér fyrir að gera þetta,því eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli" sagði móðir Magnúsar.
Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af Því sem þeim þótti vænst um. Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með þessu uppátæki.

Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að lífið endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður. Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu þér mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en það  verður of seint.

Eitt af því sem þú getur gert er að senda þetta áfram. Ef þú gerir það ekki þá hefur þú misst af tækifæri til þess að gera eitthvað gott fyrir þá sem eru þér mikilvægir. Ef þú hefur fengið þetta bréf þá er það af því að einhverjum þykir vænt um þig og að alla vega einni persónu finnst þú vera mikilvæg/ur. Sendu þetta áfram. Sýndu að þér er annt um vini þína. Mundu að þú uppskerð eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum. Vona að dagurinn verði þér fínn og sérstakur því þú skiptir miklu máli
!
 
 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Takk fyrir söguna Sivva, þetta var sönn kennslustund.

Magnús Sigurðsson, 12.3.2009 kl. 23:31

2 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Já sammála því. Góð aðferð. Maður þarf að lesa yfir fyrst ef ske skyldi...

Ólafur Þórðarson, 12.3.2009 kl. 23:34

3 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Þetta er verið að gera í skólum í dag (allavega sumum og þeim sem ég kenndi í).

Til að nemendur geti lært, þurfa þeir að vera ánægðir með sig og hafa trú að þeir geti. Þegar það er ekki til staðar er fátt hægt að gera. Ánægja er fullkomlega ástæða til að læra og áhugi þarf að vera til staðar, það er sama hver nemandinn er, hann lærir ekki nema hann vilji það sjálfur.

Þess vegna skiptir máli að sjálfsmynd nemenda sé góð og þeim líði í alla staði vel. Samskipti milli heimili og skóla á að stuðla að því að allt gengur vel, því um leið og kennari eða foreldri tekur eftir vanlíðan á að hafa samband við hinn aðilann.

Þetta var gert líka fyrir okkur kennara og annarra starfsmanna í skólanum og það gerði ótrúlega hluti fyrir samstarfið innan skólans (án þess að það hafi verið slæmt en lengi getur gott batnað), allir voru jákvæðari og ánægðari með sig. 

Það er nefninlega svo skemmtilegt því skólastjórarnir létu okkur starfsmenn hafa nafnalista með öllum þeim sem störfuðu í skólanum. Síðan áttum við að skrifa eitthvað fallegt um (helst)alla og síðan unnu stjórarnir úr þessu og þetta var síðan gefið á plaggi, í jólagjöf með bolla sem á var eitthvað fallegt um okkur og mynd. Þetta er besta jólagjöf sem ég hef nokkurn tíman fengið.

Og takið þetta upp á öllum vinnustöðum, ég er viss um að einelti minkar og samstarf batnar. 

Þetta á reyndar að gera allstaðar og við öll tækifæri.

Háskólinn á Akureyri gerir þetta fyrir nýnema sem er frábært, ég kíkti oft á það sem ókunnugt fólk sagði um mig og hvernig þeim fannst fyrstu kynni okkar vera.

Mjög skemmtilegt.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 13.3.2009 kl. 08:26

4 Smámynd: Sigurveig Eysteins

Takk fyrir þetta Kristin sjálfsmat barns og unglings skiptir mjög miklu máli, það hafði ég reynslu af sjálf, þess vegna passaði ég vel upp á börnin mín. Var stöðugt að segja þeim hvað þau væru æðisleg, dugleg, falleg og hvað ég elskaði þau mikið. Ég hélt þegar ég var unglingur að ég væri bæði ljót og leiðinleg og þannig fór ég í gegnum lífið lengi. Það var mikið áfall fyrir mig að uppgötva á endurfundi skólafélaga úr gagnfræðaskóla að allir (næstum) strákarnir höfðu verið skotnir í mér, þeir þorðu bara ekki að seigja það, og stelpurnar voru bara öfundsjúkar út í mig. Ég fékk svo mikið áfall á þessum endurfundi að ég varð að fara heim. Það hefði hjálpað mikið að hafa vitað af þessu. Það er æðislegt að skólar eru að vakna upp til lífsins hvað þetta varðar. Ég á þrjú börn og þau tvö yngstu voru lögð í einelti fyrir það eitt að vera falleg og ákveðin. Og svona að lokum þá fannst mér þessi jólagjöf æðisleg hefði verið til í að fá bara svona í jólagjöf

Sigurveig Eysteins, 13.3.2009 kl. 12:09

5 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Falleg saga.

Rut Sumarliðadóttir, 13.3.2009 kl. 13:29

6 Smámynd: Arnlaugur Helgason

Flott saga Sigurveig og einmitt eitthvað sem fólk á að hugsa um. Að sjá það góða í öðrum á að vera forgangsatriði frekar en að ætla öðrum alltaf illt. að fyrirgefa öðrum er jafnvel enn mikilvægara.

Góða helgi.

Addi.

Arnlaugur Helgason, 13.3.2009 kl. 16:20

7 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Þetta með jólagjöfina, þá passa ég vel upp á skjalið og ef ég er döpur og leið, kíki ég á það og man hvernig fólk hugsar til mín. Fólk hugsar ekki til mín eins og mér líður þá og þegar.

Alger snilld.

Það er mjög nauðsynlegt að við getum komið okkur upp úr neikvæðum hugsunum og velti fyrir sér; af hverju hugsa ég svona? hver er kveikjan? er þetta raunverulegt eða er þetta bara tilfinning? Hver er raunveruleg staðan? Hvað er gott við mig eða ástandið? Hvað geri ég vel? Hvernig geri ég vel? hvernig veit ég að ég geri það vel?

Og það sem mikilvægast er; ég er dugleg, flott, frábær, ég er alls ekki eins slæm og mér líður !!!

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 17.3.2009 kl. 08:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband